Danmörk fyrsta þjóðin til að tryggja sæti sitt í átta liða úrslitum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Kasper Dolberg fagnar öðru marki sínu í dag.
Kasper Dolberg fagnar öðru marki sínu í dag. Marcio Machado/Eurasia Sport Images/Getty Images

Danmörk og Wales áttust við í Amsterdam í 16-liða úrslitum Evrópumóts karla í fótbolta í dag. Danir eru á leið í átta liða úrslit eftir sannfærandi 4-0 sigur.

Það tók Dani 27 mínútur að brjóta ísinn. Þar var það Kasper Dolberg sem var á ferðinni eftir stoðsendingu frá Mikkel Damsgaard.

Staðan var því 1-0 þegar flautað var til hálfleiks.

Seinni hálfleikur var ekki nema tæplega þriggja mínútna gamall þegar staðan var orðin 2-0. Neco Williams gerði sig þá sekan um slæm mistök þegar honum mistókst að hreinsa boltann frá marki og Kasper Dolberg skoraði sitt annað mark.

Walesverjar voru þó virkilega ósáttir við markið, en þeim fannst brotið á sér í aðdraganda marksins. Þeir fengu þó ekkert fyrir sinn snúð, og Danir því komnir með góða stöðu.

Þriðja mark leiksins kom ekki fyrr en á 88.mínútu þegar Joakim Maehle gerði út um vonir Walesverja eftir stoðsendingu frá Mathias Jensen.

Ekki batnaði það fyrir Walesverja á fyrstu mínútu uppbótartíma þegar Harry Wilson fékk að líta beint rautt spjald fyrir litlar sakir.

Martin Braithwaite stráði salti í sár Walesverja á 94.mínútu þegar hann koma Dönum í 4-0 og gulltryggði þar með sæti þeirra í átta liða úrslitum. Wales er hinsvegar á heimleið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira