Viðskipti innlent

Ráðinn for­stöðu­maður sam­gangna hjá Betri sam­göngum

Atli Ísleifsson skrifar
Þorsteinn R. Hermannsson.
Þorsteinn R. Hermannsson. Betri samgöngur

Þorsteinn R. Hermannsson hefur verið ráðinn forstöðumaður samgangna hjá Betri samgöngum ohf. til eins árs frá 1. september.

Í tilkynningu segir að hlutverk Þorsteins verði að vera fyrirtækinu til ráðgjafar um samgöngumál, vinna að undirbúningi verkefna Samgöngusáttmálans og fylgja því eftir að markmið hans um greiðari samgöngur, fjölbreyttir ferðamátar og aukið umferðaröryggi náist í góðu samstarfi við Vegagerðina og sveitarfélögin. 

„Samgöngusáttmálinn var undirritaður af ríkinu og sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu árið 2019 og er Betri samgöngum ætlað að hrinda honum í framkvæmd á næstu 13 árum með 120 milljarða króna fjárfestingu í öllum ferðamátum.

Hann hefur verið samgöngustjóri Reykjavíkurborgar frá 2016 og mun verða í leyfi þaðan á sama tíma. Þorsteinn vann hjá Mannviti og forverum þess frá útskrift sem sviðsstjóri umferðar- og skipulagssviðs og fagstjóri samgangna. Þá var hann verkfræðingur samgönguáætlunar í samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytinu frá 2010 til 2012. Hann lauk meistaragráðu í byggingarverkfræði með sérhæfingu í samgönguverkfræði frá University of Washington í Seattle árið 2005 og B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×