Innlent

Sjö í fram­boði í próf­kjöri Fram­sóknar í Kraganum

Atli Ísleifsson skrifar
Sjö manns berjast um fimm efstu sætin á lista Framsóknar í Kraganum.
Sjö manns berjast um fimm efstu sætin á lista Framsóknar í Kraganum. vísir

Sjö verða í framboði hjá Framsóknarflokknum í Suðvesturkjördæmi í prófkjöri sem fram fer 8. maí. Kosið verður um fimm efstu sætin.

Sjö verða í framboði hjá Framsóknarflokknum í Suðvesturkjördæmi í prófkjöri sem fram fer 8. maí. Kosið verður um fimm efstu sætin.

Í tilkynningu kemur fram að talning atkvæða muni fara fram sunnudaginn 9. maí.

Willum Þór Þórsson þingmaður sækist einn eftir efsta sæti listans.Vísir/Vilhelm

„Kosið verður í lokuðu prófkjöri Framsóknar í Suðvesturkjördæmi laugardaginn 8. maí í Bæjarlind 14-16, Kópavogi, frá klukkan 10:00- 18:00. Hægt verður að greiða atkvæði utan kjörfundar 5.-7. maí frá klukkan 16:00-19:00 í Bæjarlind 14 – 16, Kópavogi

Í framboði eru:

  • Willum Þór Þórsson, Kópavogi – sækist eftir 1. sæti.
  • Ágúst Bjarni Garðarsson, Hafnarfirði – sækist eftir 2. sæti.
  • Linda Hrönn Þórisdóttir, Hafnarfirði – sækist eftir 2. sæti.
  • Anna Karen Svövudóttir, Hafnarfirði – sækist eftir 3. sæti.
  • Kristín Hermannsdóttir, Kópavogi – sækist eftir 3. sæti.
  • Þórey Anna Matthíasdóttir, Hafnarfirði – sækist eftir 3.-4. sæti.
  • Ívar Atli Sigurjónsson, Kópavogi – sækist eftir 4. sæti,“ segir í tilkynningunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×