Skreytum hús: Svefnherbergið nánast óþekkjanlegt eftir breytingarnar Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 7. apríl 2021 07:00 Fyrir og eftir mynd af herberginu sem Soffía Dögg tók í gegn í fyrsta þættinum af Skreytum hús. Þátturinn í heild sinni er kominn á Vísi. Skreytum hús Í fyrsta þættinum af annarri þáttaröð af Skreytum hús, fá áhorfendur að fylgjast með breytingu á hjónaherbergi. Soffía Dögg Garðarsdóttir heimsækir Rut Jóhannsdóttir og Davíð Þorsteinn Olgeirsson, sem eru nýflutt ásamt börnum í nýbyggingu í Úlfarsárdal.
Rut og Davíð höfðu komið sér vel fyrir að öllu leyti nema einu. „Eitt af herbergjunum sem var alveg eftir að hugsa um, og er reyndar á svo mörgum stöðum, og það er hjónaherbergið. Af hverju situr þetta herbergi alltaf á hakanum?“ segir Soffía Dögg í byrjun þáttar. „Það hefur mikla möguleika þannig að okkur langar að hafa það fínt og flott,“ segir Rut áður en þær fara saman af stað í verslunarleiðangur. Skreytum hús þættirnir birtast hér á Vísi næstu sex miðvikudaga og fara samhliða því inn á Stöð 2+ efnisveituna. Fyrsta þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan og við mælum með því að horfa á þáttinn áður en þú lest áfram. Klippa: Skreytum hús - Hjónaherbergi í Urriðaholti Loftið málað í sama lit Inni í herberginu var fallegur nýr bekkur og rúmteppi í stíl. Rut vildi halda snyrtiborðinu sínu og rúminu en annað mátti fara. Soffía fann strax að hún vildi setja rúmgafl við rúmið og fékk svo þá hugmynd að mála bæði veggi og loft í sama lit til að skapa stemningu. Svona var herbergið fyrir breytinguna.Skreytum hús Liturinn værð varð fyrir valinu, úr litakorti Soffíu Daggar hjá Slippfélaginu. Hún lýsir honum sem fullkominni blöndu af bleikum og gráum. Ein af stóru breytingunum á rýminu var að færa rúmið á annan vegg og skapa þannig meira pláss. Einnig fjarlægði Soffía Dögg stóra dökka kommóðu til þess að skapa meira rými og þurfti þá að endurskipuleggja fataskápinn aðeins. Svefnherbergið fyrir breytinguna.Skreytum hús Gamalt og nýtt tengt saman Kósý gardínur, nýir speglar, rósetta og nýtt loftljós gjörbreyttu stemningunni. Náttborð og lampar settu svo punktinn yfir i-ið. Rúmgafl úr velúr setti sterkan svip á hjónaherbergið og við rúmið setti Soffía Dögg hvít náttborð sem pössuðu vel við snyrtiborðið. „Það er svo gaman þegar maður nær að tengja gömlu húsgögnin við þau nýju,“ segir Soffía Dögg um þá ákvörðun. Það gerði mikið fyrir herbergið að færa rúmið á annan vegg.Skreytum hús Soffía Dögg er mjög hrifin af vegghillum og setur í þær kerti, gerviblóm og aðra skrautmuni. Rut er með snyrtiaðstöðu í herberginu og fékk við hana nýjan stól og hillur fyrir förðunarburstana. Snyrtiaðstaðan fær meira pláss eftir að rúmið var fært.Skreytum hús Rut og Davíð voru ótrúlega ánægð með lokaútkomuna eins og sjá má í þættinum í spilaranum hér fyrir ofan. „Ertu að grínast?“ sagði Rut þegar hún sá svefnherbergið eftir breytinguna. Hún sagði að þetta hafi farið fram úr þeirra væntingum og var hálf orðlaus. „Er þetta sama herbergið?“ Í ítarlegri bloggfærslu á síðunni Skreytum hús verður hægt að finna frekari upplýsingar um breytingarnar og þær vörur sem Soffía Dögg notaði til þess að breyta rýminu. Soffía Dögg gerði „moodboard“ fyrir breytingarnar til þess að sjá betur fyrir sér lokaútkomuna.Skreytum hús Hægt er að sjá breytinguna og horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni. Þættirnir eru sýndir á miðvikudögum hér á Vísi og fara samhliða því inn á Stöð 2+.
Skreytum hús Hús og heimili Tengdar fréttir Byrjar á að taka í gegn svefnherbergi í tilvistarkreppu „Í þessari þáttaröð má fólk eiga von á því sama og í þeirri fyrri. Við reynum að finna hagkvæmar og sniðugar lausnir, og að gera hvert rými fallegt og þannig að það henti vel íbúum,“ segir Soffía Dögg Garðarsdóttir. 6. apríl 2021 17:16 Mest lesið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið „Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“ Lífið Klæddu sig upp sem frambjóðendur Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið „Býr ekki lítil kerling innra með okkur öllum?“ Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Davíð Helgason og Isabella eignuðust dreng Lífið Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið Krakkatían: Forsetaefni, Disney og tónlist Lífið Fleiri fréttir „Tilfinningaþrungið að fá að fylgja myndinni í flík sem þessari“ Tískan á körfuboltaleiknum Mikil væntumþykja í garð lyklakippunnar Alltaf að stela fötum af kærastanum „Allt frá ofnæmistöflum yfir í míní gjaldeyrissjóð“ Steldu stílnum af konunum í forsetaframboði „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Alltaf með jager skot í töskunni Fá í fyrsta sinn að klæðast strigaskóm „Þegar manni líður vel í eigin skinni skín það í gegn“ „Stútfull og við það að springa en hefur aldrei klikkað“ 23 ára og með sína eigin förðunarlínu Laufey skein skært á Met Gala Best klæddu stjörnurnar á Met Gala „Elska hraðann, pressuna og stressið“ Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Alltaf með naglaþjöl en gleymir stundum lyklunum Sjá meira
Byrjar á að taka í gegn svefnherbergi í tilvistarkreppu „Í þessari þáttaröð má fólk eiga von á því sama og í þeirri fyrri. Við reynum að finna hagkvæmar og sniðugar lausnir, og að gera hvert rými fallegt og þannig að það henti vel íbúum,“ segir Soffía Dögg Garðarsdóttir. 6. apríl 2021 17:16