Nýjar sprungur opnuðust á Reykjanesskaga Vésteinn Örn Pétursson og Sylvía Hall skrifa 5. apríl 2021 12:12 Nýja sprungan er fyrir miðri mynd en efst í hægra horni hennar má sjá hraunið sem komið hefur upp síðustu vikur. Vísir/Vilhelm Ný hraunsprunga hefur nú opnast um hálfan kílómetra norðaustur af gosstöðvunum í Geldingadölum. Í samtali við fréttastofu segir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni að tilkynning hafi borist í hádeginu frá flugturni í Keflavík og flugmönnum. Fyrstu mælingar bendi til þess að sprungan sé um hálfur kílómtetri að lengd. Viðbúið hafi verið að sprunga gæti opnast á svæðinu, þar sem kvikugangurinn liggi undir nokkuð stóru svæði. Hér fyrir neðan má sjá vefmyndavél RÚV sem hefur verið snúið að nýju sprungunum. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að gossvæðinu í Geldingadölum hafi verið lokað í kjölfar þess að sprungan opnaðist. Rýming stendur nú yfir og frekari upplýsinga er að vænta síðar. Hér að neðan má sjá vakt þar sem greint verður frá helstu vendingum í málinu.
Í samtali við fréttastofu segir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni að tilkynning hafi borist í hádeginu frá flugturni í Keflavík og flugmönnum. Fyrstu mælingar bendi til þess að sprungan sé um hálfur kílómtetri að lengd. Viðbúið hafi verið að sprunga gæti opnast á svæðinu, þar sem kvikugangurinn liggi undir nokkuð stóru svæði. Hér fyrir neðan má sjá vefmyndavél RÚV sem hefur verið snúið að nýju sprungunum. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að gossvæðinu í Geldingadölum hafi verið lokað í kjölfar þess að sprungan opnaðist. Rýming stendur nú yfir og frekari upplýsinga er að vænta síðar. Hér að neðan má sjá vakt þar sem greint verður frá helstu vendingum í málinu.
Eldgos í Fagradalsfjalli Eldgos og jarðhræringar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent Notuðu piparúða á mótmælendur Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Innlent Fleiri fréttir Þakklát og telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Katrín sér ekki eftir framboði sínu Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Segir klútabyltinguna vera hafna Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Halla Hrund: „Þetta ferðalag mun binda okkur saman út ævina“ Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Skipuð í embætti fiskistofustjóra Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Veðurspá slæm fyrir vikuna og bændur hvattir til að huga að búfénaði Slasaðist á buggy-bíl í Básum í Goðalandi Bláa lónið opnar aftur á morgun Sjómannadagsfjör á Skagaströnd Margir góðir frambjóðendur í boði Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ „Held ég fari bara að sofa upp úr miðnætti“ Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið Sjá meira