Víta­spyrna skildi liðin að í París

Úr leik liðanna á Parc des Princes í kvöld.
Úr leik liðanna á Parc des Princes í kvöld. Alexander Scheuber/Getty

Sara Björk Gunnarsdóttir sat allan tímann á varamannabekk Lyon er liðið vann 1-0 sigur á PSG í kvöld.

Leikurinn var fyrri leikur liðanna frönsku liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar en liðin mættust í París.

Staðan var markalaus og allt þangað til á 86. mínútu er gestirnir frá Lyon fengu vítaspyrnu.

Wendie Renard, varnarmaðurinn öflugi, steig á punktinn og skoraði. Lokatölur 1-0.

Ríkjandi meistararnir eru því í góðri stöðu fyrir síðari leikinn sem fer fram í Lyon í næstu viku.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira