Fótbolti

Löw velur 17 og 18 ára stráka fyrir Íslandsleikinn

Sindri Sverrisson skrifar
Jamal Musiala fagnar marki sínu gegn Lazio á dögunum.
Jamal Musiala fagnar marki sínu gegn Lazio á dögunum. Getty/Tullio Puglia

Joachim Löw tilkynnir á föstudaginn þýska landsliðshópinn sem mætir meðal annars Íslandi, á fimmtudaginn eftir viku, í undankeppni HM í fótbolta karla. Tveir ungir nýliðar verða í hópnum.

Löw viðurkenndi í viðtali við RTL að hann gerði ráð fyrir að velja þá Jamal Musiala úr Bayern München og Florian Wirtz úr Leverkusen.

Musiala er 18 ára og hefur stigið sín fyrstu skref með Bayern í vetur, bæði í þýsku deildinni og Meistaradeildinni. Hann lék með U21-landsliði Englands en hefur ákveðið að spila fyrir A-landslið Þýskalands, meðal annars fyrir tilstilli Löws.

Musiala skoraði meðal annars eitt marka Bayern í 4-1 sigrinum á Lazio í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Liðin mætast aftur í kvöld.

Klippa: Musiala skorar gegn Lazio

Valið á Wirtz kemur meira á óvart en hann er aðeins 17 ára og nýbyrjaður að spila aftur eftir að hafa sýkst af Covid-19. Hann hefur skorað fjögur mörk í 21 leik í þýsku deildinni í vetur og tvö mörk í Evrópudeildinni.

Florian Wirtz gæti spilað sinn fyrsta landsleik gegn Íslandi.Getty/Lars Baron

Löw sagðist gjarnan vilja sjá leikmennina ungu í þýska hópnum með tilliti til Evrópumótsins í sumar. Eins og gefur að skilja hefðu þeir báðir getað farið með U21-landsliði Þjóðverja á EM í næstu viku hefði kallið ekki komið frá Löw.

Gamla þríeykið snýr ekki aftur

Löw ætlar ekki að velja þá Thomas Müller, Mats Hummels og Jerome Boateng, sem hann ákvað fyrir tveimur árum að hætta að nýta í landsliðinu. Löw útilokar hins vegar ekki að þeir fari með á EM í sumar en sagði það óþarfa núna þar sem að þeir þekktu allt sem við kæmi landsliðinu.

Þýskir miðlar segja allar líkur á því að Þjóðverjar verði án þeirra leikmanna sem spila í Englandi, vegna sóttvarnareglna, en það myndi sömuleiðis þýða að Ísland yrði án Gylfa Þórs Sigurðssonar, Jóhanns Bergs Guðmundssonar, Rúnars Alex Rúnarssonar og Jóns Daða Böðvarssonar. Þjóðverjar yrðu án Ilkay Gündogan, Timo Werner, Kai Havertz, Antonio Rüdiger og Bernd Leno.

Arnar Þór Viðarsson tilkynnir íslenska landsliðshópinn á blaðamannafundi í dag kl. 13.15. Bein lýsing verður frá fundinum hér á Vísi.


Tengdar fréttir

Al­freð ekki með í næsta lands­liðs­verk­efni

Alfreð Finnbogason verður ekki með íslenska landsliðinu er undankeppni HM 2022 fer af stað síðar í mánuðinum. Þetta staðfesti hann í viðtali á vef þýska knattspyrnusambandsins.

Stóru spurningarnar sem Arnar, Lars og Eiður Smári munu svara í vikunni

Fyrsti landsliðshópur Arnars Þórs Viðarssonar mun svala forvitni margra sem hafa verið að pæla í því hvaða stefnu hann ætlar að taka nú þegar gullaldarlið Íslands er að hefja endasprett sinn í landsliðsbúningnum. Vísir skoðaði nokkrar spurningar sem brenna á fótboltaáhugafólki við þessi tímamót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×