Fótbolti

Sjáðu stórkostleg mörk Börsunga gegn Huesca

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lionel Messi tekur í gikkinn og skorar fyrsta mark Barcelona gegn Huesca.
Lionel Messi tekur í gikkinn og skorar fyrsta mark Barcelona gegn Huesca. getty/Gerard Franco

Lionel Messi skoraði tvö frábær mörk með langskotum þegar Barcelona sigraði Huesca, 4-1, í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Fyrra mark hans var sérstaklega glæsilegt. 

Messi hefur verið í miklum ham undanfarnar vikur. Frá því árið 2021 gekk í garð hefur hann skorað sautján mörk og gefið sjö stoðsendingar í átján leikjum í öllum keppnum. Messi hefur komið með beinum hætti að marki á 64 mínútna fresti.

Messi skoraði stórkostlegt mark með langskoti gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku og endurtók leikinn gegn Huesca á Nývangi í gær. Á 13. mínútu fékk hann boltann frá Sergio Busquets, lék skemmtilega á varnarmann gestanna og þrumaði boltanum svo í slána og inn.

Antoine Griezmann vildi ekki vera minni maður en Messi og á 35. mínútu skoraði hann með þrumuskoti fyrir utan teig sem söng í netinu. Rafa Mir minnkaði muninn fyrir Huesca úr vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Á 53. mínútu kom Óscar Mingueza Barcelona í 3-1 með skalla eftir hornspyrnu frá Messi. Argentínumaðurinn átti svo síðasta orðið á lokamínútunni þegar hann skoraði með góðu skoti af löngu færi í fjærhornið. Lokatölur 4-1, Barcelona í vil.

Klippa: Barcelona 4-1 Huesca

Messi lék í gær sinn 767. leik fyrir Barcelona og jafnaði þar með leikjamet Xavis. Argentínski snillingurinn slær væntanlega leikjametið þegar Barcelona sækir Real Sociedad heim á sunnudaginn. Messi er langmarkahæsti leikmaður í sögu Barcelona með 661 mark.

Með sigrinum í gær minnkuðu Börsungar forskot Atlético Madrid á toppi deildarinnar niður í fjögur stig. Bæði lið eiga ellefu leiki eftir og þau mætast á Nývangi 9. maí. 

Atlético Madrid vann fyrri leikinn gegn Barcelona, 1-0, en ef lið verða jöfn að stigum ræður árangur í innbyrðis viðureignum hvort liðið verður ofar.


Spænski boltinn, La Liga, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. La Liga er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×