Innlent

„Önnur djúp lægð er ekki langt undan“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það er ekkert sérstakt veður í kortunum í dag og á morgun.
Það er ekkert sérstakt veður í kortunum í dag og á morgun. Vísir/Vilhelm

Hvassviðrið og úrkoman úr lægðinni sem var rétt austan við landið í gær heldur áfram í dag enda hefur lægðin færst langt síðasta sólarhringinn að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

„Önnur djúp lægð er ekki langt undan austan við landið og því má búast við norðlægum áttum með snjókomu um norðanvert landið inn í helgina,“ segir svo í hugleiðingunum.

Í dag er áfram spáð hvassviðri, norðaustan þrettán til tuttugu metrum á sekúndu, og verður hvassast á Vestfjörðum.

Spáð er snjókomu um allt norðan- og austanvert landið en rigningu eða slyddu við ströndina. Þá má búast við stórhríð en þurrt að kalla og léttara sunnan heiða.

„Dálítið léttari útgáfa af sama veðri svo á morgun sem gengur að mestu niður á laugardaginn,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Veðurhorfur á landinu:

Norðaustan 13-20 m/s, hvassast á Vestfjörðum. Snjókoma norðan- og austantil en rigning eða slydda við ströndina. Áfram stórhríð á Vestfjörðum en þurrt og bjartara yfir sunnan heiða.

Norðan og norðaustan 10-18 m/s á morgun og áfram snjókoma norðan- og austanlands, hvassast undir Vatnajökli, en annars bjart með köflum. Hiti yfirleitt kringum frostmark að 6 stigum með suður- og austurströndinni.

Á föstudag:

Norðan og norðaustan 10-18 m/s og snjókoma norðan- og austanlands, hvassast undir Vatnajökli, en annars bjart með köflum. Vægt frost víða um land, en frostlaust syðra yfir daginn.

Á laugardag:

Norðan 8-15 m/s og dálítil él á N-verðu landinu, en léttskýjað sunnan heiða. Frost 0 til 7 stig, minnst SA-lands.

Á sunnudag:

Norðlæg átt, 3-10 m/s og skýjað með köflum, en stöku él á A-landi. Kólnar dálítið norðantil.

Á mánudag:

Vaxandi suðaustanátt og með slyddu eða rigningu síðdegis, en þurrt fyrir norðan og austan. Hlýnandi veður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×