Fótbolti

Hjörtur Her­manns­son orðaður við þýsk úr­vals­deildar­lið

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hjörtur Hermannsson í baráttunni gegn Raheem Sterling er Ísland mætti Englandi í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli sumarið 2020.
Hjörtur Hermannsson í baráttunni gegn Raheem Sterling er Ísland mætti Englandi í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli sumarið 2020. Vísir/Hulda Margrét

Hjörtur Hermannsson, varnarmaður Bröndby í Danmörku og íslenska landsliðsins, er orðaður við þýska úrvalsdeildarliðið Union Berlín en samningur hans við danska stórveldið rennur út næsta sumar.

Hjörtur er meðal nokkurra leikmanna Bröndby sem verða samningslausir í sumar. Talið er að Bröndby vilji yngja lið sitt og er talið að hinn 26 ára gamli Hjörtur fái því ekki endurnýjun á samningi. Þá hefur hann ekki átt fast sæti í liðinu á þessari leiktíð þó svo hann hafi leikið flesta leiki liðsins undanfarið.

Samkvæmt Tipsbladet er Hjörtur á óskalista Union Berlín sem situr í 7. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir. Liðið er á sínu öðru tímabili í deildinni eftir að hafa komist upp í fyrsta skipti í sögunni vorið 2019. Talið er að Berlín vilji styrkja varnarleik sinn enn frekar og ekki skemmir fyrir að Hjörtur verður samningslaus í sumar.

Hjörtur hefur verið hjá Bröndby síðan 2016 en þar áður var hann á mála hjá PSV í Hollandi. Nú virðist allt stefna til þess að hann færi sig um set til Þýskalands en ásamt Union Berlín þá vilja Augsburg og Hamburg einnig fá íslenska landsliðsmanninn í sínar raðir.

Hjörtur á að baki 18 A-landsleiki fyrir Íslands hönd sem og eitt mark. Alls lék hann á sínum tíma 59 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skoraði í þeim tíu mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×