Innlent

Eini sem greindist var utan sótt­kvíar

Sylvía Hall skrifar
BE3A7171
Vísir/Vilhelm

Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Viðkomandi var ekki í sóttkví við greiningu og er smitrakning hafin.

Þetta staðfestir Jóhann K. Jóhannsson, samskiptastjóri almannavarna, í samtali við fréttastofu.

Enginn greindist við landamæraskimun í gær.,

Í fyrradag greindist einnig eitt smit en sá var í sóttkví við greiningu. 

Alls hafa þrír greinst með kórónuveiruna hér á landi undanfarna sjö daga, þar af tveir utan sóttkvíar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×