Körfubolti

Þreföld tvenna frá þeim mikilvægasta

Sindri Sverrisson skrifar
Giannis Antetokounmpo hefur verið valinn mikilvægasti leikmaðurinn, MVP, í NBA-deildinni síðustu tvö tímabil.
Giannis Antetokounmpo hefur verið valinn mikilvægasti leikmaðurinn, MVP, í NBA-deildinni síðustu tvö tímabil. Getty/Jared C. Tilton

Giannis Antetokounmpo þurfti aðeins þrjá leikhluta til að ná þrefaldri tvennu í 130-110 sigri Milwaukee Bucks á Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfubolta. Tíu leikir fóru fram í nótt.

Antetokounmpo, sem valinn hefur verið mikilvægasti leikmaður deildarinnar tvö ár í röð, skoraði 21 stig, tók 14 fráköst og gaf 10 stoðsendingar í leiknum. Grikkinn þurfti ekkert að spila í fjórða leikhluta en Milwaukee var 34 stigum yfir áður en hann hófst.

Antetokounmpo nýtti skotin sín vel og setti niður sjö af átta úr opnum leik, sem og af vítalínunni. Í síðustu tveimur leikjum hefur hann hitt úr 15 af 19 skotum sínum úr opnum leik.

„Hann spilar með afskaplega óeigingjörnum hætti,“ sagði Mike Budenholzer, þjálfari Milwaukee.

„Hann sér hlutina, les rétt í leikinn og velur réttu sendingarnar. Mér finnst hann bara vera á frábærum stað hvað hugarfar snertir. Hann er árásargjarn og sókndjarfur þegar þess þarf. Hann finnur liðsfélagana og skapar tækifæri fyrir aðra þegar þess þarf,“ sagði þjálfarinn.

Milwaukee er með næstbesta sigurhlutfallið í austurdeildinni eða 13 sigra og 8 töp. Philadelphia 76ers eru efstir með 16 sigra og 6 töp eftir að hafa unnið sinn fjórða leik í röð í nótt.

Philadelphia vann Charlotte Hornets enn einu sinni, 118-111, þar sem Joel Embiid var í stóru hlutverki og skoraði 34 stig og tók 11 fráköst. Philadelphia hefur nú fagnað sigri í 14 síðustu leikjum sínum við Charlotte.

Úrslit næturinnar:

  • Charlotte 111-118 Philadelphia
  • Milwaukee 130-110 Indiana
  • Atlanta 116-122 Dallas
  • Cleveland 99-121 LA Clippers
  • Miami 100-103 Washington
  • Chicago 103-107 New York
  • Oklahoma 104-87 Houston
  • San Antonio 111-108 Minnesota
  • New Orleans 123-101 Phoenix
  • Sacramento 116-111 Boston
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×