Handbolti

Snorri Steinn: Hann dró verulega úr okkur tennurnar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Valsmennirnir hans Snorra Steins Guðjónssonar hafa tapað síðustu tveimur leikjum sínum.
Valsmennirnir hans Snorra Steins Guðjónssonar hafa tapað síðustu tveimur leikjum sínum. vísir/Hulda Margrét

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, sagði að sínir menn hefðu einfaldlega ekki verið nógu góðir í tapinu fyrir Selfossi í kvöld.

„Það vantaði smá gæði, skora úr færunum og meiri takt í sókninni,“ sagði Snorri.

Þrátt fyrir sex marka tap hrósaði þjálfarinn sínum mönnum fyrir hugarfarið, þótt það hefði ekki fleytt þeim langt í kvöld.

„Ég er auðvitað hundfúll að tapa leik og það er eitthvað sem við sættum okkur ekki við. Við viljum ekki tapa með sex mörkum á heimavelli en ég ætla samt að hrósa þeim aðeins. Ég sá glitta í anda og neista hjá mínum mönnum og þeir börðumst allan leikinn og vildu þetta. En Selfoss var bara betri en við í dag. Hann [Vilius Rasima] varði töluvert í markinu,“ sagði Snorri. 

„Auðvitað áttum við augnablik þar sem við gátum látið leikinn snúast okkur í vil en við vorum ekki nógu góðir. Við vorum að elta allan leikinn og Selfoss vann verðskuldað.“

Umræddur Rasimas fór mikinn í marki Selfoss og varð 21 skot (48 prósent), mörg hver úr dauðafærum. Snorri segir að frammistaða hans hafi þó ekki verið eini munurinn á Selfoss og Val í kvöld.

„Það er of mikil einföldun. Það eru margir í þessu Selfossliði sem eru góðir. Þeir spiluðu sterka vörn og voru þéttir. Við vorum í vandræðum með að leysa það og gerðum of mörg mistök. En klárlega dró hann verulega úr okkur tennurnar. Hann var með margar dúndurvörslur, sérstaklega á þessum kafla þar sem við vorum við það að snúa þessu okkur í hag,“ sagði Snorri.

Valur hefur nú tapað tveimur leikjum í röð. „Ef ég tapa einum leik hef ég áhyggjur, þannig að ef ég tapa tveimur hef ég líka áhyggjur,“ sagði Snorri að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×