Körfubolti

James fagnaði orðaskaki við áhorfanda sem var vísað út

Sindri Sverrisson skrifar
Cam Reddish brýtur á LeBron James í sigri Lakers á Hawks í nótt.
Cam Reddish brýtur á LeBron James í sigri Lakers á Hawks í nótt. Getty/Kevin C. Cox

LeBron James og Anthony Davis leiddu LA Lakers til sigurs gegn Atlanta Hawks í NBA-deildinni í nótt, 107-99. Á meðal nokkurra áhorfenda á leiknum var kona sem lét James heyra það og var á endanum vísað út úr húsi.

Vegna kórónuveirufaraldursins hefur lítið verið um það að áhorfendur mæti á leiki í NBA-deildinni. Í Atlanta í gær máttu þó 1.341 stuðningsmenn heimaliðsins mæta til að sjá Atlanta spila við meistarana úr Englaborginni.

Það var í fjórða leikhluta sem James átti í þrefi við fyrrnefndan áhorfanda sem var rekinn út. James, sem skoraði 12 stig í lokaleikhlutanum og alls 21 stig í leiknum, var ósammála þeirri ákvörðun.

„Það er bara betra að hafa stuðningsmennina á áhorfendapöllunum,“ sagði James brosandi.

„Þegar allt kemur til alls þá er ég bara glaður yfir því að fá stuðningsmenn aftur í húsið. Ég saknaði þessara samskipta. Ég þarf þessi samskipti,“ sagði James.

Lakers náðu 16-0 kafla undir lok þriðja leikhluta og í byrjun þess fjórða, en Atlanta minnkaði muninn í 98-97. James setti þá niður þrist, varði skot frá Clint Capela á hinum enda vallarins og setti niður sniðskot úr hraðaupphlaupi í kjölfarið.

Anthony Davis var þó stigahæstur hjá Lakers með 25 stig. Þetta var annar sigur liðsins í röð og eru meistararnir nú með 16 sigra og 6 töp, einu tapi meira en LA Clippers og Utah Jazz sem eru efst í vesturdeildinni.

Úrslitin í nótt:

  • Atlanta 99-107 LA Lakers
  • Miami 121-129 Charlotte
  • Cleveland 100-98 Minnesota
  • Chicago 110-102 New York
  • Milwaukee 134-106 Portland
  • New Orleans 109-118 Sacramento
  • Oklahoma 106-136 Houston
  • Dallas 108-109 Phoenix
  • San Antonio 102-133 Memphis
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×