Körfubolti

NBA dagsins: Sjáðu lokasekúndurnar ótrúlegu, tröllaleik Jokic og fleira

Sindri Sverrisson skrifar
Nikola Jokic var óviðjafnanlegur í sigrinum gegn Utah Jazz.
Nikola Jokic var óviðjafnanlegur í sigrinum gegn Utah Jazz. Getty/Matthew Stockman

Lokasekúndurnar ótrúlegu í sigri Washington Wizards á Brooklyn Nets, tröllaleikur Nikola Jokic og enn einn sigur besta liðsins það sem af er leiktíð, er meðal þess sem sjá má í NBA dagsins hér á Vísi.

Wizards eru enn með versta árangurinn í vetur í NBA-deildinni í körfubolta en þeir unnu dísætan og óvæntan sigur á Brooklyn Nets í nótt, 149-146. Eins og sjá má í vídjóinu hér að neðan voru Nets fimm stigum yfir þegar rúmlega átta sekúndur voru eftir.

Nikola Jokic skoraði 47 stig fyrir Denver Nuggets sem tókst að stöðva sigurgöngu Utah Jazz með 128-117 sigri. Jokic hefur aldrei skorað fleiri stig í einum leik en Serbinn skoraði meðal annars úr öllum fjórum þriggja stiga skotum sínum í leiknum.

LA Clippers hafa þar með leikið liða best í vetur og eru á toppi vesturdeildarinnar með 16 sigra og 5 töp, einum sigri meira en Utah. Clippers unnu New York Knicks í nótt, 129-115, og hafa þar með unnið tíu af síðustu ellefu leikjum sínum.

Hér að neðan má sjá brot úr leikjunum þremur sem og að sjálfsögðu tíu bestu tilþrif gærdagsins í NBA-deildinni.

Klippa: NBA dagsins 1. febrúar

NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×