Enski boltinn

Brent­ford fyrst inn í undan­úr­slitin

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Brentford fagna því sem reyndist sigurmark kvöldsins.
Leikmenn Brentford fagna því sem reyndist sigurmark kvöldsins. Clive Rose/Getty Images

B-deildarlið Brentford gerði sér lítið fyrir og lagði Newcastle United af velli í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins í kvöld, lokatölur 1-0.

Líkt og aðrir leikir Newcastle á leiktíðinni var leikurinn ekki mikið fyrir augað. Færin voru fá sem engin og því var staðan nokkuð óvænt markalaus í hálfleik. Síðari hálfleikur var skömminni skárri og leit sigurmark leiksins þar dagsins ljós.

Það gerði Joshua Da Silva á 66. mínútu eftir sendingu Sergi Canos. Úrvalsdeildarliði Newcastle tókst ekki að jafna metin og Brentford er því komið í undanúrslit.

Síðari leikur kvöldsins í enska deildarbikarnum hefst klukkan 20.00 en þá mætast Arsenal og Manchester City. Rúnar Alex Rúnarsson er í marki Arsenal í kvöld.


Carabao Cup er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Carabao Cup er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×