Innlent

Mótmæla aðför RÚV að sunnudagsmessunni

Hólmfríður Gísladóttir skrifar

„Þeir setja þjóðkirkjuna til hliðar og hverfa frá góðum siðum sem öllum eru hollir. Þeir fylgja í kjölfar borgarstjórnar Reykjavíkur.“

Þetta segir Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í athugasemd við færslu á Facebook-síðunni „Orð kvöldsins og Morgunbæn verði áfram á RÚV“.

Um er að ræða gamla síðu sem 3.900 einstaklingar tilheyra.

Umræðuna hefur Ólafur Egilsson, sem talar um „lágkúru RÚV“ þar sem hætta eigi beinum útsendingum frá sunnudagsmessum.

„Í þeirra stað mun kirkjunni gefinn kostur á að setja saman og taka upp athafnir á fimmtudögum sem síðan verði varpað út sunnudaginn á eftir,“ segir Ólafur.

Ásmundur er einn þeirra sem furða sig á fyrrnefndri ákvörðun en á síðunni má finna athugasemdir frá fleiri þjóðþekktum einstaklingum sem hugnast ekki ákvörðun RÚV.

„Óviðunandi,“ segir Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins. „Danska sjónvarpið er með kirkjuefni á sunnudagsmorgnum.“

„Hverjum dettur þetta í hug og framkvæmir það?“ spyr Björn Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra.

„RÚV á enga samleið með þjóðinni,“ segir Gústaf Níelsson.

Orð kvöldsins og Morgunbæn verði áfram á RÚV.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×