Innlent

Solaris hlaut Mann­réttinda­verð­laun Reykja­víkur­borgar

Sylvía Hall skrifar
Sema Erla Serdar, formaður og stofnandi Solaris.
Sema Erla Serdar, formaður og stofnandi Solaris. Reykjavíkurborg

Fundurinn Mannréttindi á tímum Covid-19 fór fram í dag á vegum Reykjavíkurborgar og voru Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar afhent. Hjálparsamtökin Solaris hlutu verðlaunin í ár og fá 600 þúsund krónur fyrir vikið.

Verðlaunin eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á „eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi“ og er markmið verðlaunanna að vekja athygli á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhenti verðlaunin en í umsögn valnefndar segir að Solaris séu öflugur málsvari í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, bæði einstaklinga og barnafjölskyldna.

„Samtökin hafa stuðlað að mikilvægri vitundarvakningu um stöðu þessa viðkvæma hóps með eftirtektarverðum árangri. Mikilvægur hornsteinn í mannréttindabaráttu er að veita raddlausum hópi rödd. Samtökin hafa staðið öðrum framar í baráttunni fyrir réttlæti fyrir fólk á flótta, að grundvallarmannréttindi þeirra séu virt og að standa vörð um mannlega reisn þeirra.“

Þá hafi samtökin átt lykilþátt í því að koma í veg fyrir brottvísun fjölda barna á flótta og stuðlað að þörfum breytingum á löggjöf. Sema Erla Serdar, formaður og stofnandi Solaris, sagði verðlaunin mikilvæga viðurkenningu á starfi samtakanna.

Þrjú hlutu hvatningarverðlaun

Hvatningarverðlaun mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs fóru til Brúarsmiða – miðju máls, Vettvangs- og ráðgjafateymisins (VoR) og læsis og Tæknilæsis fyrir fullorðna.

Brúarsmiðir hafa unnið að því að byggja brú á milli menningarheima og styðja við foreldra af erlendum uppruna. Þá styðja brúarstarfsmenn við íslenskunám barna af erlendum uppruna í leik- og grunnskólum og stuðla að því að börn fái viðeigandi stuðning og jöfn tækifæri til náms.

Tæknilæsi fyrir fullorðna er nýsköpunarverkefni sem aðstoðar eldra fólk við tækni og eykur rafrænt aðgengi þeirra að samfélaginu. Valnefnd sagði verkefnið sporna gegn einangrun og einmanaleika og stuðla að auknu sjálfstæði einstaklinga.

VoR-teymið er færanlegt vettvangsteymi sem aðstoðar heimilislaust fólk. Í umsögn valnefndar segir að teymið aðstoði fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir en veiti einstaklingsmiðaða aðstoð, stuðning og ráðgjöf. Teymið starfar meðal annars með fólki í gistiskýli, Konukoti, smáhýsum og íbúðum hugmyndafræðinnar Húsnæði fyrst.

Dóra Björt Guðjónsdóttir, formaður mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs afhenti þrenn hvatningarverðalaun ráðsins. Ellen Calmon, fulltrúi í mannréttinda-, nýsköpunar og lýðræðisráði afhenti verðlaunahöfunum viðurkenningarskjöl og blómvönd.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×