Innlent

Átta manns greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Síðustu daga hafa verið um tvö hundruð manns verið í einangrun á Íslandi.
Síðustu daga hafa verið um tvö hundruð manns verið í einangrun á Íslandi. Vísir/Vilhelm

Átta manns greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær. Fjórir af þeim sem greindust voru í sóttkví, en fjórir ekki.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. 34 eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af þrír á gjörgæslu. Í gær voru 36 á sjúkrahúsi, þar af þrír á gjörgæslu.

Sjö smit greindust á landamærum – þrír með virk smit og svo er mótefnamælingar beðið í tilvikum fjögurra.

187 manns eru nú í einangrun, en fjöldinn var 197 í gær. Þá eru 261 í sóttkví í dag, samanborið við 460 í gær.

Þriðja bylgjan.

Af þeim átta sem greindust í gær greindust fjórir eftir svokallaða einkennasýnatöku en fjórir eftir sóttkvíar- og handahófsskimun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 46,1 en var 46,4 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 8,7, en var 9,5 í gær.

Alls hafa 5.506 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Greint var frá 28. dauðsfallinu af völdum Covid-19 á heimasíðu Landspítala í morgun.

Alls voru tekin 858 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 400 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin 223 sýni í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun og 290 í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Fréttin hefur verið uppfærð. Í fyrri útgáfu fréttarinnar sagði að sex hafi verið í sóttkví við greiningu. Hið rétta er að þeir voru fjórir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×