Tíska og hönnun

Svala afhjúpar leyndarmálið á bak við sleikta taglið

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Svala Björgvinsdóttir á sviðinu í Eurovision.
Svala Björgvinsdóttir á sviðinu í Eurovision. vísir/eurovisiontv.

Svala Björgvins er þekkt fyrir einstakan stíl. Hún greiðir hárið reglulega upp í hátt slétt tagl, sem hún sleikir aftur þannig að litlu hárin gjörsamlega hverfa inn í greiðsluna. Í þáttunum Snyrtiborðið með HI beauty ræddi Svala meðal annars um þessa hárgreiðslu.

Svala Björgvins er þekkt fyrir einstakan stíl. Hún greiðir hárið reglulega upp í hátt slétt tagl, sem hún sleikir aftur þannig að litlu hárin gjörsamlega hverfa inn í greiðsluna. Í þáttunum Snyrtiborðið með HI beauty ræddi Svala meðal annars um þessa hárgreiðslu. 

Söngkonan notar alltaf sömu aðferð til að ná hárinu svona einstaklega sléttu og koma vaselín og lúsakambur þar við sögu. Hún bætir svo gervihári í taglið sem hún sléttar áður með sléttujárni á meðan það hangir á IKEA herðatré.

Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan en Svala ræðir taglið á mínútu 14 í þættinum. 

Heiður Ósk og Ingunn Sig eigendur Reykjavík Makeup School eru þáttastjórnendur Snyrtiborðsins með HI Beauty. Þær eru farðaðar með vörum frá YSL beauty, Urban Decay og Lancome. Þættirnir eru teknir upp í Reykjavík Makeup School og verða sýndir á miðvikudögum hér á Vísi. 

Instagram: @the_hibeauty


Tengdar fréttir

„Ég lita alltaf hárið á mér sjálf“

Svala Björgvins er fyrsti gestur Heiðar Óskar og Ingunnar Sig í þáttunum Snyrtiborðið með HI beauty og ræddi þar um allt á milli himins og jarðar tengt förðun, húðumhyrðu, hárinu og snyrtivörum og auðvitað tónlistinni líka.

Kíkja í snyrtitöskuna hjá þekktum Íslendingum í nýjum þáttum

Á miðvikudag fara af stað þættirnir Snyrtiborðið með HI beauty hér á Vísi. Það eru förðunarfræðingarnir Ingunn Sigurðardóttir og Heiður Ósk Eggertsdóttir Sem mynda dúóið HI beauty. Í þáttunum hitta þær þekkta Íslendinga og tala um allt á milli himins og jarðar tengt förðun og snyrtivörum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×