Lífið

Friðrik hefur ákveðið að selja sína „æðislegu íbúð á Laugaveginum“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Friðrik Ómar selur íbúðina við Laugaveg. 
Friðrik Ómar selur íbúðina við Laugaveg.  myndir/fasteignaljosmyndun.is

„Þar sem maður er kominn norður í sæluna hef ég ákveðið að selja mína æðislegu íbúð á Laugaveginum. Frábærir nágrannar og virkilega gott að búa þarna,“ segir tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson í færslu á Facebook en hann hefur sett íbúð sína í hjarta miðborgarinnar á sölu.

Um er að ræða tæplega níutíu fermetra íbúð á 2. hæð með fallegum svölum til austurs. Með eigninni fylgir bílastæði í upphituðum bílakjallara.

Húsið var upphaflega byggt árið 1904 en búið er að taka húsið í gegn frá a-ö. Fasteignamat íbúðarinnar er 53,6 milljónir en ásett verð er 62,9 milljónir.

Hér að neðan má sjá myndir af eigninni en Friðrik býr sem stendur á Akureyri eins og hann segir sjálfur.

Fallegt hús í miðbænum. 
Smekklegt og opið eldhús. 
Eldhúsið hvítt og bjart og allt glænýtt. 
Opið úr eldhúsinu inni í borðstofu.
Hjónaherbergið stórt og gott. 
Virkilega góðar svalir. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×