Erlent

Þurftu að stöðva bóluefnisrannsókn sökum óútskýrðra veikinda

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Sjálfboðalioði tekur þátt í prófunum fyrir bóluefni í Bandaríkjunum.
Sjálfboðalioði tekur þátt í prófunum fyrir bóluefni í Bandaríkjunum. AP/Hans Pennink

Lyfjarisinn Johnson & Johnson hefur ákveðið að gera hlé á þróun á bóluefni gegn Covid – 19 eftir að sjúklingur sem tók þátt í rannsókninni veiktist.

Ekki er ljóst hvað amar að manninum og það er heldur ekki ljóst hvort hann hafi verið í hópnum sem fékk bóluefnið, eða hvort hann hafi verið í samanburðarhópi.

Fyrirtækið segir þó enga hættu vera á ferðum, alvanalegt sé að svo stórar rannsóknir séu stöðvaðar tímabundið af þessum sökum, en um 60 þúsund manns taka þátt í henni. Slíkt gerðist raunar í september þegar AstraZeneca þurfti að stöðva sína þróunarvinnu af sömu ástæðum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×