Bílar

Umferð um Hringveg dróst saman um 16,3%

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mikill samdráttur varð í umferð á milli september mánaða ársins í ár og í fyrra.
Mikill samdráttur varð í umferð á milli september mánaða ársins í ár og í fyrra. Vísir/Vilhelm

Umferðin á Hringveginum dróst saman um 16,3% í september miðað við september í fyrra. Það er sjöfalt meiri samdráttur en áður hefur mælst.

Samkvæmt frétt á vef Vegagerðarinnar dróst umferð saman um 75% á Hringveginum við Lón. Kórónaveirufaraldurinn er ástæða þessa samdráttar og fækkun ferðamanna vegna faraldursins hefur bein áhrif á umferð um Hringveginn sem og höfuðborgarsvæðið.

Hlutfallslegur mismunur lykilteljara á Hringvegi á milli áranna 2019 og 2020.

Tölurnar miða við talningu á 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi. Þessi samdráttur, 16,3% er langmesti samdrátturinn sem mælst hefur í sama mánuði á milli ára. Áður hafði mælst 2,6% samdráttur árin 2007 og 2008. Nú er því að mælast næstum sjöfalt meiri samdráttur en áður.

Landsvæði

Samdráttur varð á öllum landsvæðum í september. Mestur samdráttur varð á Austurlandi eða tæp 49%. Af einstaka mælisniðum, er það helst að frétta að 75% samdráttur varð um Hringveg í Lóni en minnstur varð samdráttur rétt rúmlega 1% við Úlfarsfell.

Meðalumferð eftir vikudögum það sem af er ári 2020 um 16 lykilteljara á Hringvegi.

Vikudagar

Umferð dróst saman alla vikudaga í september, mestur samdráttur varð á sunnudögum, um 17% en minnstur á þriðjudögum eða um 11,5%.

Árið 2020

Samdráttur það sem af er ári er um 12,5% miðað við sama tíma í fyrra. Mest hefur umferð dregist saman á Austurlandi frá áramótum eða um 28,5% en minnst við höfuðborgarsvæðið eða um 5,6%.

Það stefnir í met samdrátt á milli ára um 11 til 12% á Hringvegi. Mestur samdráttur á einu ári hefur mælst 5,3% á Hringvegi, það var árin 2010 og 2011. Nú stefnir því í rúmlega tvöfalt meiri samdrátt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×