Innlent

Flutt með sjúkraflugi eftir bílveltu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Stóra-Giljá er í Austur-Húnavatnssýslu.
Stóra-Giljá er í Austur-Húnavatnssýslu. Vísir

Kona var flutt á Landspítalann í Reykjavík með sjúkraflugi frá Sauðárkróki eftir að bíll hennar lenti utan vegar á þjóðvegi 1, skammt frá bænum Stóru-Giljá í Austur-Húnavatnssýslu, í morgun. Mbl.is greindi fyrst frá.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var konan fyrst flutt með sjúkrabíl á Sauðárkrók en flutt þaðan með sjúkraflugi á Landspítalann, en ekki fengust nánari upplýsingar um líðan konunnar.

Talið er að konan hafi misst stjórn á bílnum en ástæður þess liggja ekki fyrir. Bíllinn er talinn ónýtur, enda mikið skemmdur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×