Bíó og sjónvarp

Stöð 2 fær þrettán tilnefningar til Eddunnar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vala og Siggi, sigurvegarar Allir Geta Dansað.
Vala og Siggi, sigurvegarar Allir Geta Dansað. Vísir/Marinó Flóvent

Nú liggur fyrir hverjir hafa fengið tilnefningu til Edduverðlauna fyrir árið 2019 en frá því var greint á Facebook-síðu Eddunnar í dag. Þar kemur meðal annars fram að Stöð 2 fær þrettán tilnefningar til Eddunar fyrir dagskrágerð á Stöð 2 og Stöð 2 Sport.

Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur fær tólf tilnefningar og Agnes Joy tíu.

Edduverðlaunin eru veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni og voru þau fyrst veitt árið 1999. Innsend verk í ár eru fjölmörg, en þegar innsendingafresti lauk þann 21. janúar sl. höfðu framleiðendur sent alls 121 verk inn í keppnina. 

Að auki voru 266 innsendingar til fagverðlauna Eddunnar. Gjaldgeng voru sjónvarps- og kvikmyndaverk sem voru sýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar 2019 til 31. desember 2019.

Af innsendum verkum eru sjónvarpsverk alls 90 talsins. Innsendar kvikmyndir eru 11 og stuttmyndir 3. Heimildarmyndir eru 17 og 11 verk flokkast undir barna og unglingaefni.

Það var í höndum ellefu valnefnda að fara yfir öll innsend verk og velja þau sem tilnefnd eru í samtals 27 verðlaunaflokkum Eddunnar. Endanleg val er svo í höndum Akademíumeðlima og hefst kosningin, sem er rafræn, þann 9. mars og stendur yfir í viku.

Eins og fyrri ár mun almenn kosning fara fram á ruv.is um “Sjónvarpsefni ársins”. Öll tilnefnd sjónvarpsverk, alls 28 talsins, keppa til þeirra verðlauna.

Úrslitin verða svo kynnt á Edduhátíðinni 2020 sem verður haldin föstudagskvöldið 20. mars í Origohöllinn og sýnd beint á RÚV.

Tilnefningar eru sem hér segir:

Barna- og unglingaefni ársins

Goðheimar

Skoppa og Skrítla á póstkorti um Ísland

Sögur, söguspilið

Frétta- eða viðtalsþáttur ársins

Hvað höfum við gert?

Kveikur

Leitin að upprunanum

Heimildamynd ársins

Ég er einfaldur maður - ég heiti Gleb

Flórídafanginn

KAF

Síðasta haustið

Vasulka áhrifin

Kvikmynd ársins

Agnes Joy

Hvítur, hvítur dagur

Bergmál

Leikið sjónvarpsefni ársins

Ófærð 2

Pabbahelgar

Venjulegt Fólk 2

Menningarþáttur ársins

Framkoma

Fyrir alla muni

Kiljan

Með okkar augum

Víkingur Heiðar leikur Bach

Mannlífsþáttur ársins

Kokkaflakk II

Lifum lengur

Nörd í Reykjavík

Svona fólk

Veröld sem var

Skemmtiþáttur ársins

Allir geta dansað

Áramótaskaup 2019

Ísskápastríð

Kappsmál

Vikan með Gísla Marteini

Stuttmynd ársins

Blaðberinn

Móðurást

Wilma

Íþróttaefni ársins

Dominos körfuboltakvöld

Heimsleikarnir

HM stofan (HM kvenna í fótbolta)

Íþróttaannálar Stöðvar 2 sport

Undankeppni EM karla í fótbolta

Brellur ársins

CAN Film, Gustav Törnroth, RGB, Jón Már Gunnarsson fyrir Hvítur, hvítur dagur

Pétur Karlsson, Eva Sólveig Þórðardóttir, Haukur Karlsson fyrir Ófærð 2

Sigurgeir Arinbjarnarson fyrir Pabbahelgar

Búningar ársins

Helga Rós V. Hannam fyrir Ófærð 2

Margrét Einarsdóttir fyrir Goðheimar

Rebekka Jónsdóttir fyrir Pabbahelgar

Gervi ársins

Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir Ófærð 2

Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Goðheimar

Ragna Fossberg fyrir Arctic

Handrit ársins

Hlynur Pálmason fyrir Hvítur, hvítur dagur

Nanna Kristín Magnúsdóttir, Huldar Breiðfjörð og Sólveig Jónsdóttir fyrir Pabbahelgar

Silja Hauksdóttir, Gagga Jónsdóttir og Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir fyrir Agnes Joy

Hljóð ársins

Gunnar Árnason fyrir Agnes Joy

Kjartan Kjartansson fyrir End of Sentence

Lars Halvorsen fyrir Hvítur, hvítur dagur

Klipping ársins

Julius Krebs Damsbo fyrir Hvítur, hvítur dagur

Kristján Loðmfjörð fyrir End of Sentence

Kristján Loðmfjörð og Lína Thoroddsen fyrir Agnes Joy

Logi Ingimarsson fyrir Eden

Stefanía Thors fyrir Vesalings Elskendur

Kvikmyndataka ársins

Maria von Hausswolff fyrir Hvítur, hvítur dagur

Sophia Olsson fyrir Bergmál

Tómas Örn Tómasson fyrir Arctic

Leikari ársins í aðalhlutverki

Björn Thors fyrir Vesalings Elskendur

Ingvar E. Sigurðsson fyrir Hvítur, hvítur dagur

Sveinn Ólafur Gunnarsson fyrir Pabbahelgar

Leikari ársins í aukahlutverki

Björn Hlynur Haraldsson fyrir Agnes Joy

Hilmir Snær Guðnason fyrir Hvítur, hvítur dagur

Hinrik Ólafsson fyrir Héraðið

Jóel Ingi Sæmundsson fyrir Vesalings Elskendur

Þorsteinn Bachmann fyrir Agnes Joy

Leikkona ársins í aðalhlutverki

Arndís Hrönn Egilsdóttir fyrir Héraðið

Katla Margrét Þorgeirsdóttir fyrir Agnes Joy

Nanna Kristín Magnúsdóttir fyrir Pabbahelgar

Leikkona ársins í aukahlutverki

Donna Cruz fyrir Agnes Joy

Ída Mekkín Hlynsdóttir fyrir Hvítur, hvítur dagur

Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir fyrir Pabbahelgar

Sólveig Arnarsdóttir fyrir Ófærð 2

Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir Ófærð 2

Leikmynd ársins

Atli Geir Grétarsson fyrir Arctic

Bjarni Sigurbjörnsson fyrir Héraðið

Hulda Helgadóttir fyrir Hvítur, hvítur dagur

Leikstjóri ársins

Grímur Hákonarson fyrir Héraðið

Hlynur Pálmason fyrir Hvítur, hvítur dagur

Nanna Kristín Magnúsdóttir og Marteinn Þórsson fyrir Pabbahelgar

Rúnar Rúnarsson fyrir Bergmál

Silja Hauksdóttir fyrir Agnes Joy

Sjónvarpsmaður ársins

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Guðrún Sóley Gestsdóttir

Helgi Seljan

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir

Steiney Skúladóttir

Tónlist ársins

Davíð Berndsen fyrir Þorsti

Edmund Finnis fyrir Hvítur, hvítur dagur

Gísli Galdur Þorgeirsson fyrir Pabbahelgar

Jófríður Ákadóttir fyrir Agnes Joy

Kira Kira fyrir Tryggð

Upptöku- eða útsendingarstjóri ársins

Björgvin Harðarson fyrir Allir geta dansað

Björgvin Harðarson fyrir Mugison í beinni

Salóme Þorkelsdóttir og Gísli Berg fyrir Söngvakeppnin 2019

Vilhjálmur Siggeirsson fyrir Undankeppni EM karla í fótbolta

Þór Freysson fyrir Afmælistónleikar Helgi Björns

Sjónvarpsefni ársins - Almenningskosning á ruv.is

Allir geta dansað

Áramótaskaup 2019

Dominos körfuboltakvöld

Framkoma

Fyrir alla muni

Heimsleikarnir

HM stofan (HM kvenna í fótbolta)

Hvað höfum við gert?

Ísskápastríð

Íþróttaannálar Stöðvar 2 sport

Kappsmál

Kiljan

Kokkaflakk II

Kveikur

Leitin að upprunanum

Lifum lengur

Með okkar augum

Nörd í Reykjavík

Ófærð 2

Pabbahelgar

Skoppa og Skrítla á póstkorti um Ísland

Sögur, söguspilið

Svona fólk

Undankeppni EM karla í fótbolta

Venjulegt Fólk 2

Veröld sem var

Vikan með Gísla Marteini

Víkingur Heiðar leikur Bach






Fleiri fréttir

Sjá meira


×