Handbolti

Þjóðverjar þurftu að hafa meira fyrir sigrinum en gegn Íslendingum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Uwe Gensheimer er fyrirliði þýska landsliðsins.
Uwe Gensheimer er fyrirliði þýska landsliðsins. vísir/getty

Þýskaland vann fjögurra marka sigur á Austurríki, 28-32, í Vín í seinni æfingaleik sínum fyrir Evrópumótið í handbolta.

Á laugardaginn unnu Þjóðverjar öruggan sigur á Íslendingum, 33-25.

Þýskaland þurfti að hafa mun meira fyrir sigrinum í dag en á laugardaginn.

Þýska liðið var með yfirhöndina nánast allan leikinn en náði aldrei að slíta sig frá því austurríska. Þýskaland var einu marki yfir í hálfleik, 14-15.

Þjóðverjar náðu fjögurra marka forskoti um miðjan seinni hálfleik og það bil náðu Austurríkismenn ekki að brúa. Lokatölur 28-32, Þýskalandi í vil.

Þýskaland mætir hollensku strákunum hans Erlings Richardssonar í fyrsta leik sínum á EM á föstudaginn. Auk Þýskalands og Hollands eru Spánn og Lettland í C-riðli.

Austurríki er í B-riðli með Tékklandi, Norður-Makedóníu og Úkraínu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×