Innlent

Kjör­sókn fer hægt af stað í Reykja­vík

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Kjörsókn hefur farið heldur hægt af stað í forsetakosningum í dag.
Kjörsókn hefur farið heldur hægt af stað í forsetakosningum í dag. Vísir/Vilhelm

Kjörsókn hefur farið heldur hægt af stað í Reykjavík. Klukkan ellefu höfðu 5,38 prósent þeirra sem eru á kjörskrá greitt atkvæði en árið 2016 höfðu 5,94 prósent greitt atkvæði á sama tíma og árið 2012 voru það 6,12 prósent.

Í Suðvesturkjördæmi hafa 5,3 prósent kjósenda greitt atkvæði, eða 3841 manns. Á kjörskrá í Suðvesturkjördæmi eru 72.695 manns. Í forsetakosningunum árið 2016 höfðu 4585 manns kosið eða 6,8 prósent.

Á Akureyri var kjörsóknin klukkan ellefu orðin 7,09 prósent en alls 1003 höfðu greitt atkvæði. Á kjörskrá eru 14.138 á Akureyri.

Kosningaþátttaka í Suðurkjördæmi klukkan ellefu var 6,89 prósent sem er örlítið meira en árið 2016 en á sama tíma þá höfðu 6,88 prósent greitt atkvæði. Á kjörskrá eru alls 37.429 og 2.578 höfðu greitt atkvæði klukkan ellefu.

Klukkan hálf tólf var kjörsókn í Norðvesturkjördæmi 9%.

Fréttin hefur verið uppfærð. Tölur frá Reykjavíkurborg voru töluvert hærri en upphaflegar fréttir sögðu til um vegna reiknivillu sem gerð var í talningu. Upplýsingarnar hafa verið uppfærðar hér og á vef Reykjavíkurborgar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×