Innlent

„Hið óháða, ópólitíska og óþarfa RUV ohf.“

Jakob Bjarnar skrifar
Herská Facebookfærsla Eiríks fór ekki fram hjá vökulu auga Björns Bjarnasonar og Gunnar Bragi hefur hana til marks um óeðlileg áhrif starfsmanna á ráðninguna.
Herská Facebookfærsla Eiríks fór ekki fram hjá vökulu auga Björns Bjarnasonar og Gunnar Bragi hefur hana til marks um óeðlileg áhrif starfsmanna á ráðninguna.

„Hið óháða, ópólitíska og óþarfa RUV ohf.,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson þingmaður Miðflokksins háðslega og birtir mynd af stöðufærslu útvarpsmannsins Eiríks Guðmundssonar sem ekki hótar, heldur lofar, byltingu fari svo að Sjálfstæðismaður verði ráðinn útvarpsstjóri.

Af þessu má ráða að andúð Miðflokksmanna á Ríkisútvarpinu er söm við sig og jafnframt má ætla að þeim þar þyki ekki verra að skipan útvarpsstjóra skuli vera komin í einskonar hnút sem varla geta talist góð tíðindi fyrir Lilju Dögg Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. En, hún skipar ekki í stöðuna lögum samkvæmt; með það vald fer stjórn stofnunarinnar.

Mikil undirliggjandi spenna ríkir vegna stöðu útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins ohf. sem laus var til umsóknar. Vísir hefur fjallað ítarlega um málið en stjórn RÚV ohf. ákvað að gefa ekki upp nöfn umsækjenda en þeir munu vera 41 talsins. Blaðamaður Vísis kærði synjun stofnunarinnar við fyrirspurn um hverjir væru umsækjendur til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Nefndin taldi stjórnina vera í rétti með að neita að veita þær upplýsingar en blaðamaður vísaði þá málinu til umboðsmanns Alþingis sem efast um að sú niðurstaða sé í anda laganna.

Herskáar Facebook-færslur útvarpsmanns

Margir velta þessu máli fyrir sér, jafnt innan útvarpshússins sem utan. Eiríkur Guðmundsson útvarpsmaður birti um helgina tvær færslur á Facebook-síðu sinni þar sem hann ekki hótar, heldur lofar því að það verði uppreisn innan veggja Útvarpshússins verði Sjálfstæðismaður settur í stöðu útvarpsstjóra.

Facebookfærsla Eiríks sem hefur vakið upp ýmsar vangaveltur áhugamanna um það hver sest í sæti útvarpsstjóra.

Eiríkur tók þessar færslur sínar út eftir að hafa haft þær uppi í tæpan sólarhring en þær fóru ekki fram hjá vökulu auga Björns Bjarnasonar, fyrrverandi menntamálaráðherra með meiru, sem tók af þeim afrit og birti á sinni heimasíðu. Hann segir í fyrirsögn pistils um málið: Spennan magnast innan RÚV ohf.

„Í tilefni af ráðningu útvarpsstjóra og vegna skýrslu ríkisendurskoðunar kaus stjórn RÚV ohf. að hefja fjölmiðlaspuna sem rýrir trúverðugleika hlutafélagsins og stjórnar þess. Má velta fyrir sér hæfni hennar til að takast á við mál af þessum toga. Innan opinbera hlutafélagsins bíða menn með öndina í hálsinum eins og þessi FB-færsla dagskrárgerðarmannsins Eiríks Guðmundssonar sýnir“.

RÚV-ararnir í stjórn

Óvarlegt er að vanmeta vilja starfsmanna stofnunarinnar í þessu samhengi. Má nefna mál Auðuns Georgs Ólafssonar sem til stóð að gera að fréttastjóra Ríkisútvarpsins á sínum tíma, þá út frá hlutaskiptakerfi stjórnmálaflokkanna en hann hrökklaðist frá vegna andstöðu starfsmanna.

Margir telja að Lilja hljóti að hlutast til um það hver verður næsti útvarpsstjóri en stjórnin virðist horfa til lagaákvæðis þess efnis að það sé hennar og hennar einnar að kveða uppúr um það.visir/vilhelm

Fyrir liggur að þó margir hafi lagt þessa stöðuveitingu þannig upp að Lilja Dögg Alfreðsdóttir hafi sitt um það að segja hver sest í þann stól – Kári Jónasson situr sem formaður stjórnar sem fulltrúi hennar – virðist Kári líta svo á að þetta sé mál stjórnar og komi Lilju ekkert við. Þar muni ekki koma til nein pólitísk íhlutun. Vísir hefur reyndar heimildir fyrir því að Lilja ætli ekki að beita sér í málinu.

Sé litið til þess hóps sem skipar stjórn Ríkisútvarpsins ohf. má ætla að þar verði litið til vilja starfsmanna. Í stjórninni eru margir fyrrverandi og jafnvel núverandi starfsmenn: Kári sjálfur, Lára Hanna Einarsdóttir, Elísabet Indra Ragnarsdóttir og Jón Ólafsson.

Veikir stöðu Svanhildar

Margir hafa veðjað á Svanhildi Hólm Valsdóttir, sem er meðal umsækjenda; að hún verði skipuð því það henti að mörgu leyti vel í pólitísku samhengi. Lilja eigi þá greiða inni hjá Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra, sem vilji koma sínum trausta aðstoðarmanni í góða stöðu, sem svo gæti reynst vel við að liðka til fyrir málum sem Lilja vill koma áfram innan ríkisstjórnarinnar.

En ekki er úr vegi að ætla að Eiríkur hafi einmitt og meðal annars haft Svanhildi í huga þegar hann talar um að ef Sjálfstæðismaður verði skipaður verði allt vitlaust innan húss. Svanhildur hefur lengi verið hægri hönd formanns flokksins og var um árabil framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins.


Tengdar fréttir

Lilja vill svör um pukur Ríkisútvarpsins

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur sent stjórn Ríkisútvarpsins bréf þar sem hún óskar eftir skýringum á því hvers vegna listi yfir umsækjendur útvarpsstjóra verður ekki birtur.

Harmsaga fréttastjórans á RÚV

Það er reyndar í sjálfu sér eitt áhyggjuefnið að ráðamenn á Íslandi í byrjun 21. aldar virðast í alvöru líta svo á að þeim beri eitthvert vald yfir fréttastofum. Það er skuggalegt hugarfar en því miður þurfum við ekki að fara í neinar grafgötur um að það er staðreynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×