Sport

Demian Maia hengdi Ben Askren

Pétur Marinó Jónsson skrifar
UFC var með bardagakvöld í Singapúr í dag þar sem þeir Demian Maia og Ben Askren mættust í aðalbardaganum.

Bardagaaðdáendur voru spenntir fyrir því að sjá þessa tvo frábæru glímumenn mætast og fá að sjá þá glíma. Ben Askren er frábær í ólympískri glímu og komst á ólympíuleikana árið 2008 en Demian Maia er heimsmeistari í brasilísku jiu-jitsu. Þetta voru því tveir ólíkir glímustílar að mætast.

Bardaginn var þó mun meira standandi en flestir bjuggust við. Þeir Maia og Askren skiptust á höggum fyrstu lotuna og fóru ekki í gólfið fyrr en 40 sekúndur voru eftir af 1. lotu. Askren náði fellu en Maia snéri stöðunni við og var nokkuð um stöðuskiptingar í gólfinu.

Í 2. lotu héldu þeir áfram að standa með hvor öðrum og skiptust á höggum. Báðir voru að hitta ágætlega en gólfglíman var mun skemmtilegri. Askren tók Maia niður en Maia hótaði af bakinu með uppgjafartökum og komst ofan á. Maia reyndi að taka bakið á Askren en Askren kom sér úr vandræðum.

Í 3. lotu var mikið af því sama á teningnum. Askren náði fellu en Maia fór í fótalás sem hann notaði til að komast ofan á í gólfinu. Þegar Maia komst ofan á var hann fljótur að komast í yfirburðarstöðu, komst á bak Askren og hengdi hann með „rear naked choke“ eftir 3:54 í 3. lotu.

Frábær sigur hjá Demian Maia og hans þriðji sigur í röð. Hinn 41 árs gamli Maia á tvo bardaga eftir af samningum og ætlar að klára þá og svo hætta.

Ben Askren hefur nú tapað tveimur bardögum í röð og má segja að innkoma hans í UFC hafi valdið miklum vonbrigðum eftir að hann kom ósigraður inn í UFC. Bardagakvöldið var skemmtilegt en öll úrslit bardaganna má sjá á vef MMA Frétta hér.

MMA

Tengdar fréttir

Heimsklassa ólympísk glíma gegn heimsklassa jiu-jitsu

Það má með sanni segja að alvöru glímubardagi sé á dagskrá þegar UFC heimsækir Singapúr á laugardaginn. Tveir af bestu glímumönnum UFC, þeir Demian Maia og Ben Askren, mætast þá í aðalbardaganum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×