Innlent

Hlupu á brott með stolnar vörur

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Vörunum sem mennirnir stálu var skilað, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.
Vörunum sem mennirnir stálu var skilað, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi tvo menn sem grunaðir eru um að hafa stolið matvöru úr verslun í Fossvogi og hlaupið á brott er starfsmenn reyndu að stöðva þá. 

Mennirnir voru færðir á lögreglustöð. Vörunum var skilað og mennirnir lausir að lokinni skýrslutöku.

Á tólfta tímanum í gærkvöldi handtók lögregla mann sem grunaður er um að hafa kveikt eld í gámi í Hlíðunum. Hann var látinn laus að lokinni skýrslutöku.

Þá var verðmætum stolið úr íbúð í Árbæ en lögreglu var tilkynnt um málið á ellefta tímanum. Húsráðandi er erlendis og því er ekki vitað hverju var stolið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×