Erlent

Ástralir færðir fyrir frétta­fólk í hlekkjum

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Áströlsku mennirnir tveir reyna að skýla andlitum sínum fyrir myndavélunum.
Áströlsku mennirnir tveir reyna að skýla andlitum sínum fyrir myndavélunum. skjáskot
Lögreglan í Balí leiddi tvo ástralska menn, sem voru handteknir fyrir viku síðan vegna gruns um kókaín neyslu og -vörslu, fram fyrir fréttafólk og sýndi þá fyrir því.

Indónesíska lögregluembættið ætlar að ákæra mennina tvo og leita nú þriðja manns sem grunaður er um sömu glæpi eftir röð eiturlyfjaleita í Canggu þorpinu, sem er vinsæll skemmtistaða bær á Balí.

Mennirnir tveir, sem hafa verið nafngreindir sem William Cabantong, 35 ára, og David Ban Iersel, 38 ára, voru leiddir út af lögreglustöðinni fram fyrir fréttafólk, samhliða balískum mönnum sem grunaðir eru um fíkniefnabrot, og voru þeir með keðjur bæði um úlnliði og ökkla.

Lögreglan handtók þá eftir að hafa borist ábending og segir að 1,12 grömm af kókaíni hafi fundist í vasa annars mannanna auk framleiðslubúnaðar, þar á meðal bilaðrar vigtar.

Samkvæmt lögreglu keyptu mennirnir 2 grömm af efninu fyrir 26 þúsund íslenskar krónur.

Tvímenningarnir hafa gengist undir yfirheyrslur og próf í marga daga í fangelsinu. Lögregla segir blóðprufu hafa flett ofan af því að bæði Cabantong og Van Iersel notuðu kókaín.

Lögreglustjórinn í Denpasar, Ruddi Setiawan, sagði við fréttafólk: „Við hvetjum ferðamenn, heimamenn og útlendinga að koma hingað í frí. Ekki koma til að halda eiturlyfjapartý eða til að nota eiturlyf.“

„Við munum refsa útlendingum harðlega ef þeir veita viðnám. Við munum ekki vera miskunnsamir.“

Búist er við að mennirnir verði ákærðir fyrir brot á indónesísku lagagreininni 112, lagabálki sem fjallar um eiturlyfjavörslu. Verði þeir sakfelldir geta þeir átt yfir höfði sér 4 til 12 ára fangelsisvist auk sjö milljóna króna sekt.

Eftir því sem best er vitað unnu bæði Cabantong og Van Iersel sem stjórnendur skemmtistaða á meðan þeir bjuggu í Ástralíu, áður en þeir ferðuðust til Balí.

Indónesía er þekkt fyrir stranga eiturlyfjalöggjöf. Árið 2017, fyrirskipaði Joko Widodo, forseti landsins, lögreglunni að skjóta eiturlyfjasmyglara.

Hann sagði: „Verið strangir, sérstaklega við erlenda eiturlyfjasmyglara sem koma inn í landið og streitast við handtöku. Skjótið þá vegna þess að við eigum vissulega í eiturlyfjaneyðarástandi eins og er.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×