Nýir toppar ESB ósammála um Brexit Þorbjörn Þórðarson skrifar 3. júlí 2019 08:00 Ursula von der Leyen hefur verið tilnefnd til að taka við af Jean-Claude Juncker sem forseti framkvæmdastjórnar ESB. vísir/getty
Á meðal nýrra æðstu embættismanna Evrópusambandsins er ágreiningur um hvernig eigi að nálgast úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu. Ursula von der Leyen, sem hefur verið tilnefnd til að taka við af Jean-Claude Juncker sem forseti framkvæmdastjórnar ESB og Charles Michel, sem hefur verið tilnefndur sem eftirmaður Donald Tusk í embætti forseta leiðtogaráðsins, eru ekki sammála um Brexit. Michel, sem er fráfarandi forsætisráðherra Belgíu, er hlynntur því að Bretar gangi úr ESB án samnings frekar en að gerður verði úrsagnarsamningur sem gangi gegn hagsmunum Evrópusambandsins. Von der Leyen vill hins vegar málamiðlun sem báðir samningsaðilar geta sætt sig við og varaði sérstaklega við því í apríl síðastliðnum að úrsögn Bretlands úr ESB án samnings gæti haft algjörlega ófyrirseðar afleiðingar. Ljóst þykir að Michel og von der Leyen þurfa að vera samstíga um stefnuna því þau verða við stjórnvölinn hjá Evrópusambandinu gagnvart úrsagnarviðræðum Bretlands frá nóvember næstkomandi. Þau tvö gætu í reynd haft meiri áhrif á Bretland en nokkrir aðrir leiðtogar í sögu evrópskrar samvinnu að því er fram kemur í Financial Times í dag.
Bretland Brexit Evrópusambandið Mest lesið Löggan keyrði mann í stéttina og skutlaði hrákapoka um höfuð hans Innlent Rífa íþróttahúsið Innlent „Ég er komin með gjörsamlega nóg af þessu“ Innlent Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Erlent McKellen heill á húfi Erlent Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Innlent Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Innlent Lægð nálgast landið Veður Brutust inn en gripu í tómt Innlent Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Innlent Fleiri fréttir Skilgreina Norðurvígi sem hryðjuverkasamtök McKellen heill á húfi Pútín heimsækir Kim Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Hyggjast einkavæða ríkismiðil Frakka Ian McKellen féll af sviði og var fluttur á sjúkrahús Netanjahú leysir stríðsráðið upp Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Sjá meira