Sport

Róbert Ísak sigursæll á Ítalíu

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Róbert með verðlaunapeningana á Ítalíu í gær.
Róbert með verðlaunapeningana á Ítalíu í gær. Mynd/Ragnheiður
Sundkappinn Róbert Ísak Jónsson sem keppir fyrir hönd SH var sigursæll á Ítalíu um helgina þar sem World Series Para Swimming 2019 fór fram í Ligano.

Róbert Ísak bætti eigið Íslandsmet um helgina í 100 metra baksundi og var heilt yfir afar sigursæll á mótinu. Alls krækti Róbert í sex verðlaunapeninga, þrenn gullverðlaun, ein silfur og tvenn bronsverðlaun.

Róbert Ísak var stigahæsti fatlaði unglingurinn í heiminum í fyrra og er hann hægt og bítandi að undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana sem fara fram á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×