Túristabrestur Guðmundur Steingrímsson skrifar 25. mars 2019 07:00 Gullfoss verður áfram í Hvítá. Mér finnst mikilvægt að leggja á það nokkra áherslu þessi dægrin, til þess að róa sálartetrið á óvissutímum, að þó svo flugfélagið WOW hætti rekstri í núverandi mynd eða fari alveg á hausinn, þá þýðir það ekki að náttúruperlur Íslands hverfi í sömu andrá og þar með aðdráttarafl landsins og fegurð þess. Gullfoss verður áfram í Hvítá, Strokkur heldur áfram að frussast upp úr jörðinni í Haukadal, Bláa lónið missir ekki lit sinn, Þríhnúkagígur fellur ekki saman, Dyrhólaey hrynur ekki, Dettifoss verður áfram hrikalegur, Látrabjarg áfram ægilegt, Hekla ógnandi og norðurljósin töfrandi. Ísland verður áfram einhver sá magnaðasti áfangastaður sem nokkur ferðamaður getur valið sér að ferðast til. Mér finnst stundum eins og landinn hafi tekið uppgangi ferðaþjónustu á undanförnum árum sem óvæntum lukkupotti. Líkt og Ísland hafi á einhvern hátt dottið óvart í tísku – út af Björk eða Eyjafjallajökli eða út af einhverju sem einhver sagði – og í kjölfarið hafi streymt til landsins ferðamenn. Þetta er að hluta til rétt. Þetta gerðist. Eldgos varð og allt sprakk. Ferðamenn hafa flykkst til landsins síðan, jafnvel í of miklum mæli. Vegna sjómannseðlis og veiðiþels held ég að við Íslendingar, ekki síst út af því að uppganginn bar að með þessu móti, höfum margir tilhneigingu til að líta á ferðamenn eins og makríl. Þeir eru fiskitegund sem allt í einu gerði vart við sig á Íslandsmiðum. Þeir eru afli. Þeir ganga í torfum. Og semsagt: Nú er að verða túristabrestur eins og loðnubrestur. Og WOW er þá útgerðarfélag. Flugvélarnar eru togarar. Félagið hefur mokveitt á undanförnum árum, en nú eru horfur slæmar. Þetta er ekki gott, hvíslar lopapeysuklæddur skipstjóri með sjálfum sér og sötrar gulan Braga.Röng líking Mér finnst mikilvægt að minna sig á, að þó svo þessi samanburður ferðafólks við fisk eigi sér sumpart stoð í raunveruleikanum – svona af sjónarhóli atvinnumála til skamms tíma – að þá er þessi líking líka á svo mikilvægan hátt röng og óheilbrigð. Veruleikinn er fremur þessi, sem varðar okkur mjög: Áhugi fólks, út um allan heim, á ótrúlegri náttúru er ekki eitthvað sem byrjaði í fyrra og hættir á næsta ári. Þörfin til þess að upplifa náttúruna, standa andspænis henni, njóta hennar og reyna sig í henni, er þörf sem mun bara vaxa meðal mannkyns, í takt við vöxtinn á öllu hinu: Vélmennunum, sjálfvirkninni, tölvunum og netinu. Í heimi sem þráir og mun þrá náttúru meira og meira, er Ísland komið á kortið sem einstakt náttúruævintýri. Þótt bakslag komi í hinn ótrúlega mikla uppgang um stundarsakir, dettur Ásbyrgi ekki úr tísku. Né Herðubreið. Né Askja. Breyttir tímar Það er auðvitað glatað að hressilegt og djarft félag eins og WOW hafi ekki getað nýtt sér þennan mikla áhuga sem hefur skapast á Íslandi til þess að byggja upp stöndugan rekstur. Ef það var ekki hægt á þessum fordæmalausu uppgangstímum, þá er það líklega aldrei hægt. Mér sýnist sagan hafa sagt okkur að Íslendingar geti yfirleitt bara rekið eitt flugfélag, og það með herkjum og ríkisinngripum. Vandræði WOW eru þunglyndisleg áminning um þann dapurlega veruleika. Alveg burtséð frá hrakningum eins flugfélags munu útlendingar áfram unnvörpum vilja upplifa Ísland, þótt vöxturinn verði ekki 30% á ári, blessunarlega. Íslensk ferðaþjónusta mun þurfa að treysta á lögmál framboðs og eftirspurnar þegar kemur að flutningi ferðafólks til landsins. Það lögmál hefur virkað ágætlega á undanförnum árum. Þegar ég var að alast upp flugu frá landinu tvö flugfélög, Icelandair og Arnarflug, og eini túristinn í Skagafirði sumarið 1983 hét David. Nú skipta túristarnir milljónum og flugfélögin tugum. Skemmtilegt Náttúran – það sem okkur ber að varðveita og sýna öðrum – er stærri en nokkurt eitt fyrirtæki. Það er þó skemmtilegt, og kannski var það hluti af langtímaplani Skúla, ef illa færi, að nafn sköpunarverks hans, sem nú berst í bökkum, mun áfram lifa í alþjóðlegum viðbrögðum þeirra milljóna ferðamanna sem berja munu undur Íslands augum í framtíðinni. Gagnvart Gullfossi, Dettifossi, Jökulsárgljúfrum og Kirkjufelli mun fólk áfram hvísla með sjálfu sér í veðurbarinni lotningu, um aldir alda: WOW. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Ferðamennska á Íslandi Guðmundur Steingrímsson WOW Air Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Ástþór Magnússon í spádómum? Gunnar Karl Halldórsson Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira