Innlent

Vinna úr gögnum alla næstu viku

Birgir Olgeirsson skrifar
Björgunarsveitarmenn að störfum á Ölfusá.
Björgunarsveitarmenn að störfum á Ölfusá. Fréttablaðið
Björgunarfélag Árborgar í samvinnu við Sérsveit ríkislögreglustjóra og kafara Landhelgisgæslunnar hafa í dag unnið að því að skanna botn Ölfusár neðan við Ölfusárbrú með fjölgeislamælingum. Var það gert til að reyna að staðsetja bíl Páls Mars Guðjónssonar sem hafnaði í Ölfusá í febrúar síðastliðnum. 

Ekki tókst að staðsetja bílinn í dag en aðstæður við ána hafa verið mjög góðar og veður einnig. 

Við fyrstu greiningu, á vettvangi, á gögnum úr skönnun komu upp atriði sem tilefni var til að skoða betur og reyndist unnt að útiloka sum þeirra með málmleitartæki og með því að setja Gopro myndavélar niður á þeim hnitum í ánni en önnur gefa tilefni til frekari skoðunar þar sem að þar kom straumþungi, dýpi og grugg í veg fyrir að unnt væri að sannreyna með fullri vissu hvað væri þar.   Allt að einu er búið að safna umtalsverðu af gögnum og í raun mun meiri en væntingar stóðu til.

Lögreglan segir í tilkynningu að næsta  verkefni sé að að tengja saman gögnin úr hverri ferð með skannann og sjá hvort eitthvað kemur í ljós þar sem gefur síðan tilefni til frekari skoðunar.   Þess má vænta að sú vinna taki alla næstu viku.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×