Handbolti

Leik ÍBV og Akureyrar frestað aftur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Kári Kristján Kristjánsson, leikmaður ÍBV.
Kári Kristján Kristjánsson, leikmaður ÍBV. VÍSIR/vilhelm
Leik ÍBV og Akureyrar í Olísdeild karla hefur aftur verið frestað og er enn óvíst hvenær hann verður settur á.

Leikurinn átti upphaflega að fara fram í gær en var frestað vegna samgönguörðugleika. Var nýr leiktími settur í dag.

Nú hefur hins vegar aftur þurft að fresta leiknum og hefur HSÍ ekki sett nýjan leiktíma að svo stöddu.

Tveir leikir fara fram í 17. umferðinni í kvöld, Afturelding mætir Val og Selfyssingar taka á móti FH. Leikur Aftureldingar og Vals verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og svo fer Seinni bylgjan yfir umferðina að honum loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×