Innlent

Sendi mynd af fyrrverandi í kynlífsathöfn á fjölskylduna og nýjan kærasta

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Karlmaðurinn hótaði konunni að dreifa myndum af henni í kynlífsathöfn víðar.
Karlmaðurinn hótaði konunni að dreifa myndum af henni í kynlífsathöfn víðar. Getty Images
Karlmaður játaði í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að hafa brotið gegn blygðunarsemi og haft í hótunum og haft uppi stórfelldar ærumeiðingar gegn fyrrverandi eiginkonu sinni. Maðurinn neitaði sök við þingfestingu málsins en breytti afstöðu sinni þegar málið var tekið til aðalmeðferðar í gær.

Í ákæru á hendur manninum kemur fram að karlmaðurinn hafi í lok febrúar árið 2016 í gegnum Messenger samskiptaforritið sent foreldrum og systrum eiginkonunnar fyrrverandi mynd af konunni í kynlífsathöfn. Myndinni fylgdu skilaboð sem fólu í sér hótanir um að myndinni og kynlífstengdum myndböndum af konunni yrði dreift að því er segir í ákæru.

Karlinn hótaði að birta myndböndin á eigin Facebook-síðu eða senda þau víðar. Sama dag sendi karlmaðurinn unnusta konunnar sömu mynd af henni í kynlífsathöfn og skilaboð sem fólu í sér hótanir um að myndinni yrði dreift til fjölskyldu hans.

„Með háttsemi sinni særði ákærðu blygðunarsemi [konunnar], mógðaði hana og smánaði auk þess sem hann olli hjá henni ótta um velferð sína,“ segir í ákæru. Brotin varða við 209. grein, 233. grein og 233. gr. b. almennra hegningarlaga.

Þá fór konan fram á eina milljón króna í miskabætur.

Dómur verður upp kveðinn innan fjögurra vikna og líklega enn fyrr í ljósi þess að játning liggur fyrir. Reikna má með nokkurra mánaða fangelsisdómi sé horft til dóma í málum af svipuðum toga. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×