Fótbolti

Sjáðu Ronaldo strunsa fram hjá blaðamönnunum í gærkvöldi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo í leiknum í gær.
Cristiano Ronaldo í leiknum í gær. EPA/JuanJo Martin
Cristiano Ronaldo var í engu stuði til að ræða við spænska blaðamenn eftir tap á móti Atletico Madrid í Madrid í gær.

Ronaldo var þarna að snúa aftur til Madridborgar eftir að hafa gert garðinn frægan með Real Madrid liðinu í áratug.

Að þessu sinni þurfti hann að sætta sig við 2-0 tap í fyrri leik Juventus á móti Atletico Madrid í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Atletico Madrid skoraði bæði mörkin sín á síðustu tólf mínútum leiksins og er í fínum málum fyrir seinni leikinn á Ítalíu.

GiveMeSport varð sér út um myndband úr viðtalsherberginu þar sem má sjá stuttorðan Ronaldo strunsa fram hjá spænsku blaðamönnunum.

Ronaldo stóðst það samt ekki að minna alla á það að hann hefur unnið fimm Meistaradeildartitla en Atletico Madrid hefur aldrei unnið Meistaradeildina.

Cristiano Ronaldo vann Meistaradeildina með Real Madrid undanfarin þrjú tímabil en þar á undan árið 2014. Hann vann Meistaradeildina einnig einu sinni með Manchester United árið 2008.

Hér fyrir neðan má sjá tapsáran og hrokafullan Cristiano Ronaldo í viðtalsherberginu á  Wanda Metropolitano leikvangnum í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×