Innlent

Fá reglulega tilkynningar um óhugnanlegt efni á borð við Momo

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Myndir af hrollvekjandi brúðu sem hvetur börn til sjálfskaða eru nú í umferð víða á samfélagsmiðlum en verkefnastjóri ábendingalínu segir hana einungis eitt af mörgum svipuðum dæmum. Tilkynningar um óhugnalegt eða óviðeigandi efni fyrir börn berast reglulega til Barnaheilla og lögreglu.

Fyrirbærið nefnist Momo og er upphaflega japanskur skúlptúr sem nefnist Mother Bird eða móðurfuglinn, með tilvísun í japanska þjóðsögu. Andlit listaverksins hefur hins vegar öðlast sjálfstætt líf á samfélagsmiðlum en listamaðurinn sem skapaði brúðuna hefur tekið fyrir að tengjast því á nokkurn hátt.

Óprúttnir aðilar hafa nýtt sér óhugnalegt andlit brúðunnar og klippt það inn í barnaefni á Youtube. Í einhverjum tilvikum er brúðan látin hvetja börn til þess að senda skilaboð í gegnum samskiptaforritið Whatsapp þar sem síðar er herjað á barnið með obeldisfullum skilaboðum og hvatningum til sjálfsskaða. Hefur lögregla víða varað við því að þarna gætu tölvuþrjótar verið á ferð, sem reyna að komast yfir persónuupplýsingar með þessum hætti.

Samtökin Barnaheill halda úti ábeningalínu sem rekin er í samstarfi við lögreglu. Þóra Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheill, segir ábendingar um óviðeigandi efni á internetinu reglulega berast.

„Það getur til dæmis verið svona efni. Þar sem börn eru hvött til þess að skaða sjálf sig.“

Momo sé hvorki fyrsta né síðasta efnið af þessum toga.

„Það hefur til að mynda verið áður í umræðunni mjög óhugnalegar áskoranir ýmiss konar sem eru sérstaklega miðaðar að því að hvetja börn til alls konar skaðlegrar hegðunar. Það er auðvitað mjög mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um það sem gengur um netið.“

Foreldrar geti hugað að öryggisstIllingum og haft varann á en mikilvægast sé að eiga samtal um ábyrga nethegðun.

„Að upplýsa börnin. Gera þau fær um að bregðast við á réttan hátt fyrirfram og reyna að koma í veg fyrir að börnin verði fyrir áföllum af þessum leiðinda Momo.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×