Lífið

Hailey og Justin fresta brúðkaupinu fyrir geðheilsuna

Sylvía Hall skrifar
Justin bað Hailey síðasta sumar.
Justin bað Hailey síðasta sumar. Getty/Matthew Sperzel
Justin Bieber og Hailey Bieber hafa ákveðið að fresta brúðkaupsveislu sinni svo Justin geti einbeitt sér að geðheilsu sinni og vellíðan. People greinir frá þessu. 

Hjónin gengu leynilega í það heilaga hjá sýslumanni síðasta haust eftir að Justin bað Hailey í sumarfríi þeirra á Bahama-eyjum þann 7. júlí á síðasta ári. Þau hafi ætlað sér að halda stóra athöfn fyrir ættingja og vini en frestað því til þess að einblína á Justin.

„Hann vill vera besti mögulegi eiginmaður fyrir Hailey. Það er eitt að glíma við erfiðleika þegar maður er einhleypur en þegar þú ert giftur er hamingja tveggja aðila í húfi,“ sagði heimildarmaður í samtali við People

Að sögn heimildarmannsins ákvað Justin sjálfur að leita sér hjálpar vegna þunglyndis og var sú ákvörðun fyllilega studd af Hailey. Þá séu erfiðleikar Justin ekki vegna erfiðleika í hjónabandinu heldur sé þetta persónulegt mál sem hann þurfi að vinna úr.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×