Innlent

Telja Hagstofu vantelja fjölda kaþólikka

Sveinn Arnarsson skrifar
Landakotskirkja.
Landakotskirkja. Vísir/Vilhelm
Fjöldi kaþólskra hér á landi hefur þrefaldast síðan 1998 sem hlutfall allra landsmanna. 3,85% landsmanna eru nú innan kaþólsku kirkjunnar. Hefur kaþólskum því fjölgað mest á síðustu árum og eru nú rúmlega 13.000 kaþólskrar trúar hér á landi.

Árið 1998 voru rúmlega 3.200 landsmanna innan kaþólsk u kirkjunnar eða rétt rúmt eitt prósent landsmanna á þeim tíma. Nú, tveimur áratugum seinna, telur Hagstofan að kaþólskir séu um 13.400 talsins.

Séra Patrick Breen, prestur kaþólsku kirkjunnar í Reykjavík, segir töluna þó mun hærri.

„Hingað hafa flust margir frá Póllandi, Litháen og Filippseyjum, kaþólskum löndum, og Suður-Ameríku. Það er meginskýringin,“ segir sr. Patrick. „Tölurnar um kaþólska á Íslandi gefa hins vegar ranga mynd af fjöldanum sem kirkjan þjónar. Hér eru um 23 þúsund Litháar og Pólverjar við störf. Megnið af því fólki er kaþólskt. Þannig að við getum reiknað með að hér séu um 25 þúsund kaþólikkar. Við teljum að 2.000 manns, sem eru af íslensku bergi brotnir, séu kaþólskrar trúar.“

Það er því í mörg horn að líta hjá prestum kirkjunnar og þar sem kaþólskir eru duglegir við að iðka trú sína þarf að messa oft.

„Það er liður í okkar trú að mæta til messu og vera virkur í starfinu. Til að mynda erum við með sex sunnudagsmessur í Landakoti. Þær eru mjög vel sóttar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×