Óvænt tap Arsenal í Hvíta-Rússlandi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Þessu kvöldi vilja leikmenn Arsenal gleyma sem fyrst
Þessu kvöldi vilja leikmenn Arsenal gleyma sem fyrst vísir/getty
Verðandi liðsfélagar Willums Þórs Willumssonar í Bate Borisov unnu nokkuð óvæntan sigur á Arsenal í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Arsenal var miklu meira með boltann en skapaði sér þó lítið með honum. Heimamenn í Bate voru þéttir til baka og það gekk illa hjá Skyttunum að skjóta sig í gegn.

Heimamenn fengu hornspyrnu á síðustu mínútu fyrri hálfleiks sem Stanislav Dragun skallaði í netið úr teignum og staðan því 1-0 fyrir Bate í leikhléi.

Seinni hálfleikurinn var meira af því sama. Arsenal var með boltann en gerði ekkert við hann. Gestirnir komu boltanum þó í netið á 56. mínútu en Alexandre Lacazette var réttilega dæmdur rangstæður.

Kvöldið varð svo enn verra fyrir Arsenal undir lok leiksins þegar Lacazette var sendur snemma í sturtu fyrir að fara með olnbogann í andlit Aleksandar Filipovic. Augljóst pirringsbrot sem verðskuldaði rautt spjald.

Pirringurinn varð ennþá meiri þegar dómarinn flautaði til leiksloka og ljóst að Arsenal tapaði 1-0. Það er þó enn seinni leikurinn eftir viku á Emirates.

Bate hefur aldrei í sögu félagsins komist upp úr 32-liða úrslitunum og það yrði svo sannarlega saga til næsta bæjar ef þeir gerðu það í fyrsta skipti með því að leggja enska stórveldið að velli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira