Erlent

Fjögurra ára drengur skaut ólétta móður sína í andlitið

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Enn er óljóst hvort ákært verði í málinu. Mynd tengist fréttinni ekki beint.
Enn er óljóst hvort ákært verði í málinu. Mynd tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Kona í Washington-ríki í Bandaríkjunum slasaðist lífshættulega á laugardag þegar fjögurra ára sonur hennar skaut hana í andlitið með byssu sem hann fann undir dýnu á heimilinu. Konan er á þrítugsaldri og barnshafandi.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var konan flutt lífshættulega slösuð á sjúkrahús. Þá er talið að faðir drengsins hafi komið byssunni fyrir undir dýnunni af ótta við glæpamenn í hverfinu.

Maðurinn gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa ekki fylgt öryggisreglum við meðferð á skotvopni. Gert er ráð fyrir að lögreglumenn hefji rannsókn á málinu í dag og í kjölfarið komi í ljós hvort ákært verði í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×