Körfubolti

Versta tap LeBron James á ferlinum | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
LeBron James tapaði stórt í nótt með LA.
LeBron James tapaði stórt í nótt með LA. vísir/getty
LeBron James og félagar í Los Angeles Lakers töpuðu stórt í nótt þegar að þeir heimsóttu Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfubolta en heimamenn unnu með 42 stiga mun, 136-94.

Þetta er versta tap LeBron á ferlinum en tvisvar sinnum áður hefur hann verið í liði sem tapar með 36 stigum. Mest var Indiana 46 stigum yfir en liðið setti upp skotsýningu fyrir utan þriggja stiga línuna.

Indiana skoraði 19 þriggja stiga körfur sem er félagsmet en Bojan Bogdanovic skoraði fjóra þrista og var stigahæstur heimamanna með 24 stig. Myles Turner skoraði 22 en þrír varamenn Indiana skoruðu 17 stig hver.

LeBron var stigahæstur í Lakers-liðinu með 18 stig auk þess sem að hann tók sjö fráköst og gaf níu stoðsendingar en LA er í tíunda sæti vestursins, þremur sigrum frá úrslitakeppninni eins og staðan er núna.

„Þeir skoruðu 33 stig eftir að hirða boltann af okkur 19 sinnum og það var alveg frá byrjun leiksins. Við getum ekki verið í svona eltingarleik. Ég held að við höfum verið svolítið þreyttir eftir flugið,“ sagði svekktur LeBron James eftir leik.

„Þetta er í fyrsta sinn á tímabilinu sem að við fljúgum svona þvert yfir landið en það breytir því ekki að við vorum ekki með rétt viðhorf í varnarleiknum og þeir refsuðu okkur fyrir það,“ sagði LeBron James.

Úrslit næturinnar:

Charlotte Hortnets - LA Clippers 115-117

Cleveland Cavaliers - Boston Celtics 96-103

Indiana Pacers - LA Lakers 136-94

NY Knicks - Detroit Pistons 92-105

Philadelphia 76ers - Toronto Raptors 107-119

Memphis Grizzlies - Minnesota Timberwolves 108-106

OKC Thunder - Orlando Magic 132-122

Portland Trail Blazers - Miami Heat 108-118

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×