Innlent

Reyndi að hindra störf lögreglu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Tveir voru handteknir í Garðabæ í gærkvöld.
Tveir voru handteknir í Garðabæ í gærkvöld. Vísir/Sigurjón
Nóttin var mjög róleg hjá lögreglu að því er segir í fréttaskeyti hennar til fjölmiðla í morgun. Laust fyrir klukkan 23:00 voru tveir einstaklingar handteknir í Garðabæ. Annar er grunaður um líkamsárás en hinn grunaður um að hindra störf lögreglu á vettvangi. Báðir gista nú fangageymslur.

Á svipuðum tíma var ökumaður handtekinn á Seltjarnarnesi vegna gruns um ölvunarakstur en vegfarandi hafði tilkynnt um aksturslag ökumannsins. Bifreið ökumanns reyndist jafnframt vera ótryggð og því voru skráningarmerki fjarlægð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×