Innlent

Rúta og fólksbíll rákust á við Tungnafljót

Birgir Olgeirsson skrifar
Viðbragðsaðilar voru sendir á vettvang.
Viðbragðsaðilar voru sendir á vettvang. Vísir/Vilhelm
Viðbragðsaðilar eru nú á leið á vettvang þar sem umferðaróhapp varð við brúna yfir Tungufljót, skammt norðan við Geysi. Þar rákust saman fólksbíll og rúta með samtals 7 aðilum í.

Ekki munu hafa orðið slys á fólki en við áreksturinn sprungu loftpúðar þannig að brugðist er við í samræmi við að mögulegt sé að einhverjir áverkar séu.

Vegurinn mun vera lokaður en hjáleið er um Brúarlöð eftir Skeiðavegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×