Innlent

Brenndi hluta af fötunum sínum

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Að mestu leyti róleg nótt að baki hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Að mestu leyti róleg nótt að baki hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm
Lögregla handtók seint í nótt mann í annarlegu ástandi í Hafnarfirði. Maðurinn er grunaður um að hafa verið að kveikja eld og var meðal annars búinn að brenna hluta af fötum sínum.

Hann var vistaður í fangageymslum og verður yfirheyrður þegar líður á daginn.

Þá handtók lögregla ölvaðan erlendan ferðamann í miðborginni í gærkvöldi sem var til vandræða og fékk hann að gista í fangaklefa í nótt.

Þriðji maðurinn í annarlegu ástandi var síðan handtekinn í Kópavogi í gærkvöldi sakaður um ofbeldi gegn lögreglumann. Sá fékk einnig að dúsa í fangaklefa í nótt.

Að öðru leyti var nóttin róleg hjá lögreglu að mestu leyti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×