Enski boltinn

Klopp: Salah er einfaldlega í heimsklassa

Dagur Lárusson skrifar
Klopp og Salah.
Klopp og Salah. vísir/getty
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, fór fögrum orðum um Mohamed Salah eftir 4-3 sigur Liverpool á Crystal Palace í gær þar sem Egyptinn skoraði tvö mörk.

 

Jurgen Klopp fagnaði grimmt í leikslok og sparaði ekki stóru orðin í viðtali eftir leik.

 

„Hann er einfaldlega í heimsklassa.“

 

„Það virkaði svo vel að fá hann frá Roma, það högnuðust allir á þeim skiptum. Það henntar honum mjög vel hvernig liðið spilar og það gefur honum færi á að skora fleiri mörk og vera alltaf réttur maður á réttums stað. Allir eru í leit að svona leikmanni.“

 

„Það var augljóst að við þurftum að stíga upp í seinni hálfleiknum. Í fyrri þá vorum við mikið betra liðið en Palace eru hættulegir þegar kemur að skyndisóknum og þeir náðu að nýta sér eina slíka með Zaha sem er frábær í þessum aðstæðum.“

 

„Í seinni hálfleiknum þá vorum við ákveðnari og náðum að skora fjögur frábær mörk. Þeir náðu að skora tvö og því var leikurinn spennandi allt til enda.“

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×