Innlent

Rukka 200 krónur fyrir klósettferð á BSÍ

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Hér má sjá gjaldtökuhliðið við salernisaðstöðu BSÍ.
Hér má sjá gjaldtökuhliðið við salernisaðstöðu BSÍ. Vísir/Birgir
Í seinustu viku hófst gjaldtaka fyrir notkun salernisaðstöðu á umferðarmiðstöðinni BSÍ. Kemur klósettferðin til með að kosta 200 krónur. Hægt verður að greiða fyrir notkun aðstöðunnar bæði með reiðufé og greiðslukorti.

Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, sagði í samtali við fréttastofu að tekin hafi verið ákvörðun um að hefja gjaldtöku eftir að ákveðið var að gera salernin upp. Salernisaðstaðan er því nokkuð nýrri og glæsilegri heldur en áður fyrir breytingar.

Hann sagði hreinlæti ekki hafa verið sérstakt vandamál á salernum BSÍ en húsið væri þó undir nokkru álagi.

„Við höldum salernisaðstöðunni opinni 24 tíma á sólarhring, 365 daga á ári. Það eru um 2 milljónir gesta sem fara um húsnæðið á ári,“ sagði Björn og bætti við að tími hafi verið kominn á endurbætur á salernisaðstöðunni.

Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða.Kynnisferðir

Frítt fyrir yngstu börnin

Þá er ókeypis fyrir allra yngstu gesti stöðvarinnar að nýta sér salernin en Björn sagði að miðað yrði við fimm til sex ára aldur í því samhengi. Hann sagði þá að flestir gestir stöðvarinnar væru fullorðnir ferðamenn sem fæstir væru með börn með sér, svo áherslan á þann þátt hafi ekki verið mikil við innleiðingu gjaldtökunnar.

Björn sagðist ekki hafa fengið veður af viðbrögðum við gjaldtökunni og benti á að flestir sem færu um húsnæðið væru erlendir ferðamenn sem kæmu einu sinni til tvisvar í gegn um stöðina.

Aðspurður um hvernig verðið hafi verið ákveðið sagði hann að 200 krónur hafi verið talin nokkuð eðlileg upphæð til þess að rukka fyrir eina klósettferð og benti á að aðrir aðilar ferðaþjónustunnar væru á svipuðum slóðum hvað varðar verðlag.

„Margir sem hafa verið að rukka fyrir salernisferðir hafa verið á þessu bili, 150 til 200 krónur. Sumir jafnvel meira,“ sagði Björn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×