Innlent

Drógu fiskiskipið Kristínu GK til Hafnarfjarðar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd tekin um borð í Tý í gær þar sem fiskiskipið Krístin GK sést.
Mynd tekin um borð í Tý í gær þar sem fiskiskipið Krístin GK sést. Guðmundur St. Valdimarsson
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð frá fiskiskipinu Kristínu GK síðdegis í gær en skipið var þá vélarvana um 30 sjómílur vest-norðvestur af Garðskaga. Varðskipið Týr var þá úti fyrir Keflavík og hélt þegar í átt að fiskiskipinu að því er segir í tilkynningu frá Gæslunni.

Áhöfn varðskipsins skaut línu yfir í skipið á tíunda tímanum í gærkvöldi og hélt að því búnu með það áleiðis til Hafnarfjarðar. Varðskipið kom með skipið til Hafnarfjarðar snemma í morgun en hafnsögubáturinn Hamar tók þá við og fylgdi því síðasta spölinn að bryggju.

Meðfylgjandi myndir eru teknar af Guðmundi St. Valdimarssyni.



Klippa: Týr kemur fiskiskipi til bjargar
 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×